þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það hafa nokkrir þingmenn lýst þeirri afstöðu sinni að það sé í raun ekki fær leið að klára þetta mál í gegnum þessa síðari umræðu á meðan ekki hefur verið brugðist við þessum óskum um birtingu þessara tilteknu gagna. Í því ljósi skiptir auðvitað máli að virðulegur forseti upplýsi þingheim um hvort það sé verið að gera eitthvað í þessu máli. Nei er líka svar þannig að það væri nú bara kostur ef það kæmi fram ef virðulegur forseti hefur engin áform uppi um að stíga inn í þetta mál. Við þekkjum það að virðulegur forseti hefur iðulega stigið inn í mál þar sem stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar hafa haft sitthvora skoðun á málum. Ég óska eftir því að það verði leitt í jörðu hvort virðulegur forseti ætli sér að gera eitthvað í þessu (Forseti hringir.) því að það mun liðka fyrir umræðunni hér í þingsal ef þessi gögn verða, eins og einhver orðaði það hér áðan, frelsuð.