þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við ræðum hér í síðari umræðu þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, svo og nefndarálit meiri og minni hluta hv. utanríkismálanefndar og breytingartillögur. Ég hef ekki haft tækifæri til að fylgjast með allri umræðunni hér í þingsal en ef marka má það sem mér hefur þó tekist að heyra þá hefur umræðan að mestu verið málefnaleg. Það er auðvitað svo að uppi er töluverður ágreiningur um tillöguna, tímasetningu hennar, hvað hún þýðir og spurninguna sem lögð verður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu, svo eitthvað sé nefnt. Umræður litast að sjálfsögðu af þessari stöðu. Það kemur sennilega fáum á óvart sem á mál mitt hlýða og vita hvar í flokki ég stend að ég er fylgjandi tillögunni og ánægður með að hún sé fram komin og mun sannarlega styðja hana í atkvæðagreiðslu hér í þinginu og merkja já við spurninguna sem meiri hluti hv. utanríkismálanefndar leggur til að verði þessi: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Svarkostir eru já eða nei.
Álit meiri hluta hv. utanríkismálanefndar er umfangsmikið og ber þess vott að vel hafi verið staðið að meðferð málsins í nefndinni en auk vinnu í nefndinni sjálfri var tiltekin vinna unnin í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Uppi er ágreiningur innan hv. utanríkismálanefndar um hvort allra viðeigandi gagna hafi verið aflað við meðferð málsins í nefndinni. Það er mat meiri hlutans að svo hafi verið en minni hlutinn telur að svo hafi ekki verið. Ég treysti því mati meiri hlutans að málið sé nægilega upplýst svo að það sé tækt til umræðu hér í þinginu og eftir atvikum til atkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég sótti fund í Vaduz í Liechtenstein í þingmannanefnd EFTA/EES fyrir helgina ásamt hv. þingmönnum Ingibjörgu Isaksen og Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni. Umræddur fundur er sameiginlegur með þingmönnum frá EFTA/EES-ríkjunum þremur og þingmönnum á Evrópuþinginu og varðar fyrst og fremst EES-samninginn og þróun hans. Þess vegna nefni ég þennan fund sérstaklega hér að á meðal þingmanna EFTA/EES-landanna og einnig Evrópuþingmanna er mikill áhugi á umræðunni sem hér fer fram um aðildarviðræður. Það kom fram hjá þingmönnum frá Noregi og Liechtenstein að í löndunum tveimur væri þegar til umræðu hvaða áhrif það muni hafa á EES-samninginn ef Ísland nær viðunandi samningi við ESB og gerist meðlimur sambandsins. Raunar er það svo að utanríkisráðherra Liechtenstein, sem ávarpaði þingmannafundinn, sagði að þar í landi væri verið að skoða sviðsmyndir varðandi það. En hvers vegna finnst mér ástæða til að nefna þetta hér, frú forseti? Jú, vegna þess að ef við segjum já 29. ágúst og hefjum aðildarviðræður við ESB þá erum við ekki að bíða eftir því hvað aðrir gera og bregðast við því heldur erum við okkar eigin gæfusmiðir. Það skiptir okkur miklu máli hvað þær þjóðir sem eru með okkur í EFTA og einnig hluta EES munu gera í framtíðinni. Kemur til þess einn ganginn enn að Norðmenn sæki um og greiði atkvæði um samning, nokkuð sem þeir hafa gert tvisvar áður? Munu Ísland og Liechtenstein ná að viðhalda EES-samningnum við slíkar aðstæður og mun ESB hafa áhuga á því að viðhalda slíkum samningi fyrir þjóðir sem samtals telja um 440.000 íbúa? Spyr sá sem ekki veit. En ég veit að þeir samningar sem ESB gerir nú um stundir við þriðju ríki byggja ekki á módeli EES-samningsins.
Frú forseti. Það er kannski hliðarsaga en það fer ekki hjá því, þegar ég hugsa um stöðu okkar innan Evrópu, að þegar EES-samningurinn var gerður, sannarlega við allt aðrar aðstæður en nú eru uppi, voru í EFTA og tóku þátt í samningagerðinni öll EFTA-ríkin, Sviss þar með talið. Austurríki, Finnland og Svíþjóð, þau þrjú síðarnefndu ásamt Noregi sóttu um aðild að ESB og gengu í sambandið en Noregur felldi tillögu um inngöngu. Sviss felldi EES-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu og hefur síðan staðið í ströngu við gerð margvíslegra samninga við ESB. Spurningin sem ég velti fyrir mér, að gefinni þeirri forsendu að það var enginn vilji á Íslandi til að ganga í ESB á þessum tíma, þ.e. 1994, er þessi: Hvernig hefðu utanríkisviðskipti okkar þróast ef Noregur hefði gengið í ESB með Austurríki, Finnlandi og Svíþjóð? Væri EES-samningurinn okkar það hryggjarstykki í útflutningi sem hann er? Ef ekki, hvað þá?
Frú forseti. Ég kann ekki svarið en óvissa um markaði er það versta sem þjóðir sem reiða sig á útflutning geta búið við. Þegar ég finn andstöðu margra hv. þingmanna við að laga það sem mér finnst vera smáatriði í EES-samningnum, og hefur verið kennt við bókun 35, vex að mínu mati óvissan og ég hræðist þá vegferð sem slíkir eru tilbúnir að fara í. Við þurfum að stýra okkar eigin vegferð og við skulum varast einangrunarstefnu. Slík stefna er aldrei góð.
Frú forseti. Þar sem ég sat í langferðabifreið í Mið-Evrópu og hlustaði á hv. þingmenn á Alþingi ræða um umrædda þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu kom þar að að hv. þm. Ingvar Þóroddsson tók til máls. Mér fannst ræða þingmannsins með eindæmum skýr um hvað þingsályktunartillagan er og hvet þá sem á hlýða til að hlusta á eða lesa ræðu hv. þingmanns. Þar eru með skýrum hætti dregnar fram meginlínur þessa máls.
Frú forseti. Ef ég ætti að nefna eitt atriði sem leitt hefur mig að þeirri niðurstöðu að okkur Íslendingum farnist vel með aðild að Evrópusambandinu þá eru það gjaldmiðlamálin. Upptaka evru hér á landi myndi verða til heilla fyrir þjóðina en það þýðir ekki að það muni gerast hratt. Við munum þurfa að beita viðeigandi aga í ríkisfjármálum svo tiltekin markmið náist. Sumir halda því fram að mesti vaxtamunur, ef borin eru saman vaxtakjör á húsnæðislánum hér á landi við það sem best gerist í Evrópu, geti verið allt að 180 milljarðar kr. á ári, þ.e. heimilin þyrftu að greiða 180 milljörðum minna ef við værum með evru. Það er kannski ekki alveg sanngjarnt að bera saman vaxtakjör í íslenskri krónu nú um stundir og það sem best gerist í Evrópu þannig að þessi munur er sennilega nær 100 milljörðum kr. á ári en það er þó dágóð fjárhæð. Því er haldið fram af þeim sem eru ekki sammála að við getum alveg náð þessum árangri með krónu, við þurfum bara að sýna aga. Ef svo er þá verðum við að spyrja okkur hvers vegna það hefur ekki tekist. En er ekki líka áhugavert að velta fyrir sér að ef forsendur mína hér að framan eru réttar og vaxtagreiðslur heimilanna vegna húsnæðislána myndu lækka um 100 milljarða á ári — hverjir eru það nú sem fá þessar greiðslur og fengju þær ekki ef við værum með evru? Það er næsta augljóst að það eru bankar og lífeyrissjóðir. Lífeyrissjóðirnir eru fjöregg þjóðarinnar sem við verðum að gæta vel að, en þó ekki með því að skapa þeim ósanngjarna stöðu gagnvart lántökum. Það væru sem sagt ekki bara ríkisfjármálin sem þyrftu að tileinka sér aga heldur einnig bankar og lífeyrissjóðir. Í núverandi stöðu eru takmörk á því hve mikil gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða má vera. Í 1. mgr. 36. gr. d laga um lífeyrissjóði segir:
„Lífeyrissjóður skal takmarka gjaldmiðlaáhættu sína með því að tryggja að að lágmarki 35% af heildareignum sjóðsins séu í sama gjaldmiðli og skuldbindingar hans.“
Það þýðir að að lágmarki 35% af heildareignum sjóðsins sé í sama gjaldmiðli og skuldbindingar hans, sem þýðir að 35% af heildareignum séu í íslenskri krónu, og þar af leiðandi megi 65% af heildareignum vera í erlendum gjaldmiðlum. 2. mgr. sömu greinar tiltekur hvernig þessum mörkum verði náð en krafa um hlutfall heildareigna í íslenskum krónum lækkar í skrefum til ársins 2036 þegar 35% markinu verður náð. Hinn 1. janúar næstkomandi lækkar þetta hlutfall í 44% og svo um 1% á ári þar til 35% markinu verður náð.
Frú forseti. Í núverandi umhverfi eru sem sagt 45,5% eigna lífeyrissjóða í höftum með tilheyrandi áhrifum á ávöxtunargetu þeirra og með tiltekinni hættu á að verð á eignamörkuðum innan lands sé of hátt. Þetta breytist vonandi við upptöku evru hér á landi.
Að lokum, frú forseti, sumt verður ekki sagt nógu oft: Með samþykkt þessarar þingsályktunartillögu verður ákveðið að kjósa hinn 29. ágúst nk. um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það verður ekki kosið um að ganga í Evrópusambandið. Sú kosning verður eftir atvikum seinna. Hvers vegna skyldum við ekki vilja skoða hvaða möguleikar eru fyrir okkur að vera fullgildir þátttakendur í sambandi evrópskra þjóða? Er ekki í raun verið að beita blekkingum þegar fólk er hvatt til að segja nei í atkvæðagreiðslunni? Fólk er hvatt til að hafna frekari upplýsingum um það hvernig samningur við Evrópusambandið getur litið út á þeim forsendum að við vitum allt nú þegar. Það er ekki rétt. Við vitum ekki hvernig samningurinn lítur út fyrr en við höfum klárað viðræður og samningur lítur dagsins ljós. Við sem viljum hefja á ný viðræður við Evrópusambandið höfum flest verið mjög skýr á því að við munum ekki samþykkja samning sem við metum ekki góðan fyrir Ísland og Íslendinga. Engan þeirra sem vilja ekki hefja þessar viðræður hef ég heyrt segja að hann myndi samþykkja góðan samning við ESB. Í þeirra huga er sem sagt ekki til góður samningur, frú forseti. Það þykir mér furðuleg afstaða og skrýtin skilaboð til kjósenda. Mín skilaboð eru þessi: Segjum já 29. ágúst og sjáum hvernig aðildarsamning við fáum og tökum þá ákvörðun.
Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.