þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Hún er samt gott dæmi um það hvernig stjórnarliðar hafa verið beittir blekkingum og koma hér upp í ræðustól og fara ekki rétt með. Byrjum á lífeyrissjóðunum. Ég vil upplýsa hv. þingmann um það að lífeyrissjóðirnir eru ekki í höftum og hafa aldrei verið í höftum, ekki síðan við afléttum þeim. Ástæðan fyrir því að 35% verða að vera í íslenskum krónum 2036 er sú að þeir greiða laun í íslenskum krónum. Ef við værum með evruna þá þyrftum við að hafa 35% í evrunni, þeir gætu ekki verið með allar eignirnar sínar í dollurum. Nú er það þannig, virðulegur forseti, að lífeyrissjóðirnir geta átt 55% í erlendum eignum en þeir eiga 41%. Það er þeirra val. Þetta eru ekki höft. Í öðru lagi get ég upplýst hv. þingmann um það hvað gerist ef ESB segir upp EES-samningnum sem núverandi ríkisstjórn er að reyna að koma okkur út úr. Samkvæmt reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar verða þeir að bæta okkur það upp með jafngóðum hætti varðandi markaðsinngang á sína markaði; það eru nokkrar samþykktir sem Evrópusambandið hefur gengist undir.
En ég ætla að spyrja hæstv. hv. þingmann um eitt. Hv. þingmaður þekkir þessi mál mætavel þótt hann hafi verið ranglega upplýstur um það sem hann fór með hér áðan. Hann veit hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. Hv. þingmaður er á virðulegum aldri, hann þekkir það hvað þjóðir hafa þurft að gera til að fá völd í sínar hendur. Truflar það hv. þingmann ekki neitt að við förum í sameiginlega sjávarútvegsstefnu? Hv. þingmaður þekkir landhelgisdeiluna, sem stóð í nokkur hundruð ár. Við fengjum aldrei aftur þau völd sem við höfum núna. Síðan er það mjög margt annað, stórt og smátt — ég veit að hv. þingmaður er ekki veiðimaður en finnst honum ekki skrýtið að Brussel ákveði hvaða fugla við eigum að veiða, og ref og hvali? Við fengjum þessi völd aldrei aftur ef við gengjum í Evrópusambandið.