157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:54]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans andsvar. Ég held að við séum ekkert ósammála um það hvað lífeyrissjóðirnir geta. Í augnablikinu þurfa þeir að vera með 45,5% í krónu og þingmaðurinn nefndi laun og er auðvitað að tala um pensjóngreiðslurnar, þær eru auðvitað í krónu. Á meðan svo er þá þarf þetta að vera þannig. Ef við værum ekki með krónu heldur evru og við værum að svinga á milli evru og dollara værum við í allt annarri stöðu. En spurningin kemur við kviku, hvort þetta trufli mig ekki neitt af því að ég hafi fylgst með þorskastríðunum og því hvernig við öðluðumst sjálfstæði. Ég veit alveg hvernig við öðluðumst sjálfstæði og ég veit alveg hvernig við öðluðumst fullveldi. Það er ekki þannig að við séum að tapa fullveldi okkar eða sjálfstæði við að gera samninga við erlendar þjóðir eða ganga í sambönd. Ég lít ekki þannig á. Síðan er það þannig varðandi sjávarútvegsstefnuna — ég hlustaði á ágætan þátt þar sem var viðtal við mann sem starfar hjá Brim sem fór yfir sjávarútvegsstefnuna. Auðvitað er það ekki nein sönnun fyrir því hvernig hlutirnir eru, en sá taldi að það væri ekkert ólíklegt að við gætum haft okkar niðurstöðu um bolfiskinn en um flökkustofna þyrftum við auðvitað að semja. Það er nokkuð ljóst, enda gerum við það núna. Varðandi fugla og hvali, ég þekki þetta bara ekki, en það væri auðvitað hægt að fara í samningaviðræður um það að við gætum ráðið því hvenær gæsaveiðitímabilið er.