þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans seinna andsvar. Að mínu mati er það ekki rétt að þetta sé óumdeilt. Það er ekki óumdeilt að við afsölum okkur fullveldi. Það liggur alveg fyrir að við þurfum að breyta stjórnarskrá vegna þess að við framseljum ákveðinn part af fullveldinu. (Gripið fram í: Já. )Það þýðir ekki að við séum að afsala okkur fullveldi yfir landinu, ekki frekar en Danmörk og Svíþjóð hafa gert. (Gripið fram í: Jú.) Nei. Ég segi það bara, það eru ekki þjóðir sem hafa afsalað sér fullveldi heldur hafa þær samið, á grundvelli þess að þær hafa fullveldi, um að hluti fullveldisins sé framseldur til ESB. (Gripið fram í: Nákvæmlega. )Það þýðir ekki að þær hafi afsalað sér fullveldi, framsal og afsal er ekki það sama. Ég veit það alveg, og það þarf ekki að segja mér það, að það þarf að breyta stjórnarskránni ef við ætlum að ganga í ESB. Við þurfum ekki að eyða neinum tíma í að ræða það hvort það sé svoleiðis. Það er einfaldlega þannig að fullveldi þjóðar heimilar henni að semja um fullveldi sitt, (Gripið fram í: Já. )það liggur í fullveldinu. (Gripið fram í: … truflar það þig …) Ég ætla bara að halda orðinu hér. Og varðandi það að það trufli mig — nei, það truflar mig ekki að semja við líkar þjóðir um það hvernig við ætlum að vinna saman. Varðandi Ice-exit, ef til þess kæmi, þá finnst mér kannski að við séum að hugsa hlutina aðeins of langt, að hugsa um það, ef við ætlum að ganga í Evrópusambandið, hvernig við myndum haga okkur í útgöngunni.