157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:03]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir andsvarið. Það minnir mig svolítið á hringhendu, það sem kemur fram hjá hv. þingmanni: Munum við fá varanlegar undanþágur? Hvað með hin ríkin? Mun ESB aðlaga sig að Íslandi? Hvað segja hin ríkin? Þetta er einhvers konar samningur við sjálfan sig um það hvað við getum fengið. Við skulum ekkert vera að semja við sjálf okkur um það hvað við getum fengið og við skulum ekki lenda inni í miðri tjakksögu þar sem við hendum tjakknum strax í hausinn á þeim sem við erum að tala við. Það getur bara vel verið. Ég bara frábið mér einhverja drýldni um að ég viti ekki hvað Evrópusambandið er. Ég hef bara þá von í brjósti að það sé hægt að ná samningi við Evrópusambandið sem verði hagstæður Íslendingum. Ef ekki, þá vil ég ekki samninginn. Þetta er bara svo einfalt mál.