þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Manni hreinlega fallast hendur. Það liggur fyrir hvað Evrópusambandið er. Evrópusambandið veitir ekki varanlegar undanþágur. Evrópusambandið hefur ekki gert það síðan á tíunda áratugnum. Þeir hafa verið mjög skýrir með það og meira að segja fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, sem kom hér og talaði á fundi hjá Viðreisn, hefur verið mjög skýr með þetta. Evrópusambandið er ekki eitthvað þar sem þú getur valið hvað er gott og hvað er slæmt. Ef þú ætlar að sækja um Evrópusambandið þá snýst það eingöngu um það hvernig og á hve löngum tíma þú aðlagar þig að sambandinu. Gott og vel að einhver vilji fara í þá vegferð, en að þurfa að beita þessum blekkingum aftur og aftur er auðvitað óþolandi, bæði fyrir okkur hér á Alþingi og heima. Og ef þetta eru ekki blekkingar þá held ég að hv. þingmaður og hv. þingmenn meiri hlutans ættu að fara að kynna sér hvað Evrópusambandið er.