þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir síðara andsvar þótt ekki hafi falist í því nein spurning heldur frekar hvatning um að ég kynni mér hvað Evrópusambandið er. Ég get fullvissað hv. þingmanninn um það að ég hef alveg kynnt mér hvað Evrópusambandið er. Það er kannski þessi drýldni sem kemur fram hjá minni hlutanum sem telur að allir sem eru á þeirri skoðun að vilja skoða hvað fáist út úr samningi við Evrópusambandið viti ekkert um Evrópusambandið og þeir séu að beita blekkingum, væntanlega sjálfa sig líka þá, séu að beita sjálfa sig blekkingum um það hvað Evrópusambandið er. Eða trúa því að maður standi hér, vakni á morgnana til að koma til þings og beita blekkingum — þetta er alveg ótrúlega leiðinleg orðræða. Ég hef ekki reynt að halda því fram að það séu neinar blekkingar, hvorki hjá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur eða öðrum þeim sem tala hér gegn þessari atkvæðagreiðslu.