157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:07]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Þingmaðurinn er fulltrúi flokks sem er stofnaður um eitt mál, að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er alveg skýrt og hefur komið hér ítrekað fram. Þingmaðurinn talaði um að hér væri drýldni í málflutningi hjá minni hlutanum. Ég ætla nú bara að vísa þeim ummælum til föðurhúsanna. Ég hef ekki orðið vör við nokkra drýldni í innleggjum stjórnarandstöðuþingmanna. Mig langar að ræða aðeins við þingmanninn um landbúnaðarmálin. Það segir nefnilega í áliti meiri hlutans að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum falli niður með aðild að tollabandalagi Evrópusambandsins. Þingmaðurinn hlýtur að vita það að tollvernd er íslenskum landbúnaði gríðarlega mikilvæg. Þingmaðurinn segir jafnframt að hann muni ekki koma hér með samning eða það verði ekki lagður fram samningur sem er ekki góður, þannig að ég spyr: Er hann hlynntur því að efla innlenda matvælaframleiðslu á Íslandi? Er hann hlynntur því að efla byggðafestu á Íslandi? Telur hann raunhæft að það sé hægt að ná samningi þegar meiri hlutinn er búinn að gefa sér það fyrir fram að tollvernd á landbúnaðarvörum verði felld niður við inngöngu í sambandið? Telur þingmaðurinn það ásættanlegt? Það væri mjög fínt að fá það hér fram. Myndi hann treysta sér til að koma hér með samning fyrir þing og þjóð þar sem þetta er lagt til, að tollvernd verði lögð niður með tilliti til þess sem það mun valda í dreifbýli landsins?