þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar andsvar. Það má kannski segja það, af því að því hefur nú verið fleygt hér í nokkrum ræðum að Viðreisn hafi verið stofnuð um eitt mál, að Viðreisn var meira og minna stofnuð um það eitt að gæta almannahagsmuna umfram sérhagsmuni, þannig að það er rétt að halda því til haga. Staða í landbúnaði sem hv. þingmaður nefnir, hún spyr mig hvort ég sé fylgjandi því að efla landbúnað og eftir atvikum byggðafestu. Ég er fylgjandi því og matvælaöryggi sem hv. þingmaður nefndi sérstaklega, ég er mjög fylgjandi því. Ef við horfum til stuðnings — og nú ætla ég ekki að reyna að halda því fram að ég gæti þulið upp samninga sem aðrar þjóðir hafa gert við Evrópusambandið en ef ég hef tekið rétt eftir þá hafa verið gerðir samningar á milli Finnlands og Evrópusambandsins sem að einhverju leyti heimiluðu Finnlandi að styðja við sinn landbúnað umfram það sem gerist í öðrum ríkjum Evrópusambandsins, þannig að einhvers konar mótvægisaðgerðir — ef það kemur til þess að tollvernd verði felld niður, þá er væntanlega mögulegt og raunhæft að hafa mótvægisaðgerðir á móti. Svo vil ég bara segja það að ég hef fulla trú á íslenskum landbúnaði. Ég hef alveg fulla trú á því að íslenskir bændur geti aðlagað sig að því að vera í Evrópusambandinu og ég hef líka fulla trú á því að Íslendingar vilji kaupa íslenskar landbúnaðarvörur.