157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:11]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Þingmaðurinn hlýtur að vera upplýstur um að landbúnaður bæði í Finnlandi og Svíþjóð, sérstaklega Finnlandi, stendur verr eftir inngöngu í Evrópusambandið, stendur verr, líklega um 40% verr. Það er engin ástæða til að ætla annað en að þróunin yrði sú sama hér á Íslandi. Þannig að ég spyr aftur: Treystir hv. þingmaður sér til að leggja slíkan samning fyrir þing og þjóð sem fellir niður tollvernd á landbúnaðarvörur frá ríkjum Evrópusambandsins þegar vitað er að staða bænda mun versna? Það er þróunin bæði í Finnlandi og Svíþjóð. Ég kalla þetta að kasta inn handklæðinu áður en Viðreisn fær kannski sinn draum uppfylltan um að kíkja í pakkann. Þetta finnst mér að kasta inn handklæðinu.