157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:12]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir síðara andsvar og ítreka mitt fyrra svar, að það sé hægt að vera með mótvægisaðgerðir. Hins vegar er það þannig, og ég hefði mátt segja það líka kannski áðan, að ég er ekkert að halda því fram að við eigum ekki að reyna að eiga eitthvað við tollverndina í samningnum. Það er bara sjálfsagt að gera það. Við eigum bara að sjá hvort það sé hægt. (IngD: Stendur í nefndarálitinu.) Nefndarálitið er ekki hluti af samningnum. Það er það sem talið er í nefndaráliti að geti orðið. Það getur bara vel verið að við getum átt við það. Ég vona það. (Gripið fram í.) Við erum ekki með spurningar úr sal, er það? Er ég ekki með orðið?

(Forseti (KÁB): Hv. þingmaður hefur orðið.)

Ég ætla ekki að reyna að halda því fram að allir þættir samnings við Evrópusambandið verði góðir. Einhvers staðar munum við væntanlega fara halloka en það er heildarsamningurinn sem skiptir máli.