157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mig langar í ljósi þess sem var rætt í fundarstjórn fyrir ekki löngu síðan, annars vegar um gögn sem var óskað eftir við upphaf þingfundar að yrðu gerð aðgengileg, að spyrjast fyrir um hvort eitthvað sé af því að frétta þar sem hæstv. forseti Alþingis var hér í hliðarsal rétt áðan og væntanlega á svæðinu. Mig langar til að biðja sitjandi forseta að forvitnast um hver staðan í þeim efnum er. Hins vegar langar mig að spyrja hvort óskað hafi verið eftir viðveru hæstv. utanríkisráðherra hér í salnum vegna þess að fundi, sem átti sér stað upp úr hádegi samkvæmt þeim upplýsingum sem voru lagðar fram í byrjun þingfundar, er væntanlega lokið og ég sé að hæstv. utanríkisráðherra er 10. þingmaður á mælendaskrá héðan í frá. Ráðherrann ætlar sér greinilega að koma til umræðunnar á einhverjum tímapunkti. Spurt er: Hefur eitthvað verið gert til að kalla hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) hingað til umræðunnar þannig að hæstv. ráðherra sýni umræðunni þá virðingu að vera hér í sal eða a.m.k. í húsinu?