þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er mögulegt að ég komi aftur upp ef ég tel mig þurfa að bregðast við einhverju á eftir undir liðnum fundarstjórn forseta. Ég ætla að taka undir orð hv. þm. Gríms Grímssonar um að það er agalega leiðinlegt að við þurfum að tala um blekkingar. En ef einhver gæti sagt okkur hvernig í pottinn er búið, ef einhverjir hæstv. ráðherrar kæmu inn í umræðuna, væri kannski hægt að leiðrétta þessar blekkingar sem við höfum minnst á aftur og aftur. Það hefur enginn gert þannig að ég ætla að óska eftir því við forseta að við verðum upplýst um það hvenær hæstv. ráðherrar koma til umræðunnar því ég stóð í þeirri meiningu að við værum í tímapressu. Og einnig hvenær það liggur fyrir hvenær við og þjóðin eigum að fá að sjá þessi leynigögn eða hvort forseti ætli ekkert að bregðast við beiðni um að trúnaði verði aflétt af leynigögnunum.