157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:17]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil gera mjög alvarlegar athugasemdir við fundarstjórn forseta. Það er ekki svo að við þurfum að fara á netið og panta okkur tíma í fundarstjórn forseta. Það er ekki svo. Forseti spyr mig og aðra hv. þingmenn úr sínum stól ekki um hvað við ætlum að segja í fundarstjórn forseta og skammtar okkur ekki hvað við megum segja hér undir fundarstjórn forseta. Hér biðja menn um að koma upp undir liðnum fundarstjórn forseta. Ég hef ekki séð það hér áður að forseti, af einhvers konar yfirlæti, horfi yfir þingsalinn og spyrji hvað hv. þingmaður ætli að segja undir liðnum fundarstjórn forseta.

Virðulegi forseti. Þetta er ekki samboðið því sem virðulegur forseti allra þingmanna á að gera þegar hann stýrir fundi og ég frábið mér þessi vinnubrögð.