þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég er að einhverju marki á svipuðum slóðum og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Það er auðvitað þannig að í fundarstjórn forseta óska menn, sem ekki hafa nýtt rétt sinn í tvígang, eftir því að komast á mælendaskrá eftir því sem umræðunni vindur fram ef tilefni er til. Þetta er ekki eins og þegar þingmenn gera grein fyrir atkvæði sínu eða eitthvað í þá veruna, að menn upplýsi um það fyrir fram hverjir ætla að taka til máls undir þessum lið. Að því sögðu skiptir máli að það verði brugðist við og að virðulegur sitjandi forseti upplýsi okkur um að þessar beiðnir hafi verið mótteknar, það skiptir vissulega máli. Það sem skiptir meira máli eru viðbrögð, að við vitum hvort viðbragða sé að vænta eða þá að við verðum upplýst um að svo sé ekki, það eigi ekki að gera neitt með þessa sanngjörnu beiðni sem fram er komin hvað varðar gögnin í þessu leyniherbergi. Það er lykilspurningin sem við óskum eftir að fá viðbrögð við: Hefur eitthvað verið gert? Er verið að gera eitthvað? Eru áform uppi um að gera eitthvað? Ég vil biðja sitjandi forseta um að koma þessum skilaboðum til virðulegs forseta þannig að botn komist í. Það er það (Forseti hringir.) sem er líklegast til að liðka fyrir þessari umræðu í dag.