þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Hún fór hér yfir ýmislegt, m.a. varnar- og öryggismálin að hluta til og ræddi um mikilvægi aðildar Íslands að NATO. Við tryggjum öryggi okkar og varnir í gegnum það bandalag. Síðan ræddi þingmaðurinn líka um mikilvægi tvíhliða varnarsamnings Íslands við Bandaríkin, sem ég tek fyllilega undir. Það verður aldrei of oft ítrekað. Hún orðaði það reyndar aðeins öðruvísi en ég ætla bara að orða það á minn hátt: Hvað þessi mál varðar er nákvæmlega ekkert skjól í ESB, við skulum bara hafa það alveg á tæru. Þeirri sem hér stendur líkar ekki hræðsluáróðurinn sem kemur fram í þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra sem við erum að ræða hér í dag. Mér finnst í rauninni óboðlegur sá hræðsluáróður enda er ekkert skjól í þessu batteríi, ESB.
Mig langar að taka undir gríðarlega mikilvæg varnaðarorð sem þingmaðurinn hafði uppi varðandi auðlindamálin, ég tek undir þau líka. Við munum eftir innleiðingu orkupakka þrjú og afleiðingunum sem það hefur haft; hækkun raforkuverðs o.s.frv. Mig langar að spyrja þingmanninn: Ef svo fer að við förum í aðlögunarviðræður við Evrópusambandið, og ég tala nú ekki um ef það verður samþykkt að ganga í þetta batterí, ef þjóðin samþykkir að fara í aðlögunarviðræðurnar, telur hún að þrýstingur aukist þessu samfara að innleiða orkupakka fjögur, sem þeirri sem hér stendur hugnast ekki? (Forseti hringir.) Og telur hún að það muni auka þrýsting á að hér verði lagður sæstrengur? Ég minnist þess að hún talaði líka um vindorkuna í sínu innleggi.