157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:42]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mikilvægar spurningar, kjarnaspurningar í samhengi við auðlindamálin. Hv. þingmaður spyr út í þessi mál ef svo færi að viðræður myndu hefjast. Í fyrsta lagi tel ég það vera grundvallaratriði að það væri auðlindaákvæði í okkar stjórnarskrá ef við ætluðum að stíga slík skref. Ég held líka að það sé augljóst að innleiðing á orkulöggjöf verði ekki með neinum fyrirvörum í gegnum sameiginlegu EES-nefndina og annað þannig að það mun klárlega hraða upptöku orkupakkanna.

Ég myndi svo mikið vilja hvetja hæstv. ríkisstjórn til þess að beina sjónum sínum heldur að þeim möguleikum sem við eigum enn í dag. Við höfum verið að innleiða orkulöggjöf Evrópusambandsins og við höfum möguleika til að skerpa á þeirri löggjöf til að tryggja hagsmuni Íslands, til að tryggja eignarhald auðlindanna. Ég myndi svo miklu frekar vilja sjá að krafturinn sem settur er í þetta mál væri settur í að stoppa í þau göt. Sama á við um þá þingsályktunartillögu sem ég nefndi hér áðan sem snýr að því að endurskoða jarðalög til að tryggja að við séum ekki að selja auðlindir vatns, jarðefna og ræktarlands og fleira þegar við erum að selja jarðir. Ég myndi svo mikið vilja að ríkisstjórnin myndi samþykkja þá þingsályktunartillögu og taka upp þá vinnu, því að það er bara dæmi um vinnu þar sem eru göt sem hægt er að stoppa í (Forseti hringir.) á ákveðinn máta og myndi gera það að verkum að við næðum betri niðurstöðu fyrir Ísland (Forseti hringir.) miðað við þá löggjöf og þau mistök sem við höfum þegar gert, í staðinn fyrir (Forseti hringir.) að við séum einhvern veginn að keyra hraðar áfram.