157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir svörin. Í erindi sínu kom hún líka inn á landbúnaðinn. Mér hefur orðið tíðrætt um hann hér í dag þannig að mig langar að ræða aðeins við þingmanninn um þá stöðu sem upp er komin vegna þess að svo virðist sem ríkisstjórnin ætli bara að kasta inn handklæðinu og sé búin að kasta inn handklæðinu ef farið er eftir þessu nefndaráliti meiri hlutans. Það kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum falli niður með aðild að tollabandalagi Evrópusambandsins. Ég veit að þingmanninum er jafn annt um íslenskan landbúnað og byggð í þessu landi og þeirri sem hér stendur þannig að mig langar að spyrja þingmanninn: Finnst henni boðlegt að bera þetta á borð fyrir íslenska þjóð, fyrir bændur þessa lands, fyrir þá sem stunda innlenda matvælaframleiðslu — það eru fjölmargar fjölskyldur í landinu sem hér eru undir. Finnst henni boðlegt að bera það á borð í nefndaráliti meiri hlutans að það sé bara gefið fyrir fram að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins falli niður með aðild að tollabandalagi ESB? Finnst henni slíkt boðlegt og telur hún þessari ríkisstjórn sem hér situr, þ.e. ef farið verður í þessar viðræður, er það boðlegt að leggja slíkan samning á borð fyrir íslenska þjóð?