þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir hans skeleggu ræðu þar sem hann fór vítt um völl og nefndi fjölmörg atriði. Sérstaklega fannst mér áhugavert að hlusta á frásagnir hans um framgang Íra og þeirra sjávarútvegs innan Evrópusambandsins og myndi kannski vilja fá örlítið meira um það frá hv. þingmanni. Spurning mín lýtur kannski frekar að þessum undanþágum sem stjórnarliðum er svo tíðrætt um, að þeir muni fá einhvers konar undanþágur í þessum samningaviðræðum og þá aðallega á sviði fiskveiða og auðlinda okkar í sjónum og hafinu og einnig hvað varðar landbúnað og orku, aðallega þessi þrjú atriði. Sífellt er ágreiningur um þetta, að það séu engar undanþágur en þau ætli samt að ganga til samninga til að ná fram einhverjum undanþágum. Ég spyr hv. þingmann um hans álit á því. Hvers vegna telur hv. þingmaður að stjórnvöld séu yfirleitt að fara í þessa vegferð þegar það virðist augljóst — a.m.k. þegar maður er búinn að hlusta á hv. þingmann halda sína ágætu ræðu — að engar undanþágur eru fyrir hendi, eins og hv. þingmaður lýsti svo ágætlega hér hvað varðar Írland og þeirra fiskveiðistjórn innan sambandsins?