157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:12]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, þetta írska dæmi er svo kristaltært í því hvað þetta þýðir þó að gerður hafi verið um það skriflegur samningur. Við inngönguna 1976 gera Írar þennan skriflega samning um það að fari kvótinn í þeirra fiskveiðilögsögu niður fyrir ákveðið mark þá sé gólf, þá hafi þeir í raun einir aðgang að veiðum. Árið 1983 var þetta fellt inn í sameiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins, það gekk svo langt. Það reynir í fyrsta skipti á þetta núna þegar menn eru að skera gríðarlega niður í makríl og kolmunna, sem eru meginstofnar í írskum sjávarútvegi, algerlega meginstofnar. Þá taka sig saman stór og öflug lönd innan Evrópusambandsins og neita, segja bara nei. Þetta þýðir það að írski flotinn getur verið að veiðum á þessu ári í örfáar vikur. Þeir þurfa að vera í landi, bundnir við bryggju, á meðan skip Evrópusambandsins, annarra þjóða í Evrópusambandinu, eru við veiðar í þeirra lögsögu. Þannig að jafnvel þótt það væru boðaðar einhverjar varanlegar undanþágur eða skrifað undir það þá heldur það ekki einu sinni.

Hvernig dettur mönnum í hug að þjóð eins og Írar, við þessar aðstæður þar sem allt er á hvolfi í írskum sjávarútvegi — menn eru brjálaðir þar í þinginu. Ég fór yfir það hver viðbrögð sjávarútvegsráðherrans voru. Hann talaði um stórkostleg svik bandalagsþjóðanna, stórkostleg svik. (Forseti hringir.) Hverjum dettur í hug að þeir muni skrifa upp á einhverjar varanlegar undanþágur fyrir Íslendinga? Þeir munu bara vilja komast í pottana hérna.