þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir nánari útskýringar hans á þessari sérkennilegu stöðu sem kom upp á Írlandi hvað varðar þeirra fiskveiðar í þessum mikilvægu stofnum. Jafnvel þótt þeir væru upphaflega búnir að setja gólf hvað varðar sínar veiðar þá kom í ljós síðar, eins og hv. þingmaður kom inn á, að Evrópusambandið hafði full yfirráð yfir þessum auðlindum og stjórnar raunverulega veiðunum og sinnti ekki þessari undanþágu sem Írar töldu sig hafa. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann: Hver er hans skoðun hvað varðar landbúnað? Ef við göngum til liðs við Evrópusambandið, mun verða óheftur innflutningur landbúnaðarafurða? Telur hv. þingmaður það? Hver er hættan t.d. varðandi heilbrigði íslenskra búfjárstofna ef slík yrði raunin? Eins og við vitum þá hafa íslenskir búfjárstofnar hafa verið hér (Forseti hringir.) síðustu 11 aldir ósnertir og ómengaðir af sjúkdómum að mestu leyti.