157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:16]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fjallaði svolítið um þetta í sjávarútveginum, sem á að vera alveg nægjanlegt dæmi fyrir okkur til að átta okkur á því að þetta er auðvitað bara einhver della sem verið er að bera á borð fyrir þjóðina, að sé verið að kjósa um, nema menn séu þá tilbúnir að gefa þetta frá sér. Landbúnaðurinn er í raun alveg það sama. Auðvitað munum við ekkert komast hjá því að verða hluti af landbúnaðarstefnu sambandsins þar sem viðskipti eru frjáls. Við erum í engri stöðu til að keppa við massaframleiðslu Evrópusambandsins. Styrkirnir koma að einhverju leyti á móti en þetta yrðu ansi líflausar byggðir þegar búið er að skera búfjárstofnana þar niður við trog og framleiðslan er farin. Heilbrigðið er þar stór þáttur sem er áhætta fyrir okkur. Það þarf ekki að ræða við okkur þingmenn um það, það er alveg nóg að vitna bara í dýralæknana okkar sem hafa varað mjög ítrekað við því (Forseti hringir.) hvað það getur þýtt fyrir okkur; aukinn innflutningur, óheftur undir slælegra eftirliti. Það er bara stórhættulegt mál. Við erum (Forseti hringir.) búin að vera hér einangruð í svo langan tíma að við höfum náð að vera laus við marga skráveifuna sem fylgir landbúnaði í Evrópusambandinu (Forseti hringir.) þegar kemur að dýrasjúkdómum og slíku.