þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því að hafa ekki verið hér tiltækur þegar hv. þm. Jón Gunnarsson lauk sinni ágætu ræðu. Ég var annars staðar í húsinu en náði nú svo sem hverju orði hjá hv. þingmanni þannig að ég held að það komi ekki að sök hér í andsvörum. En hv. þingmaður spurði í upphafi ræðu sinnar: Hvar eru samningsmarkmiðin? Í hvaða vegferð er verið að leggja? Og það er nú kannski það sem við höfum spurt okkur að í þeirri umræðu sem hefur átt sér stað, bæði hér fyrir helgi og í dag. Jú, nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar er ansi þykkt en innihaldið er kannski ekki í takti við öll þau orð sem eru á blaðsíðunum. Mig langar því að beina þessari spurningu til hv. þm. Jóns Gunnarssonar: Sér hann eitthvað frekar í nefndaráliti meiri hlutans sem bendir til þess að um einhver samningsmarkmið sé að ræða? Og ef svo er, hver eru þau? Ef svo er ekki, hvað er þá verið að gera? Hvernig á þjóðin að geta tekið upplýsta ákvörðun um það hvort fara eigi í þessa vegferð sem ríkisstjórnin boðar til 29. ágúst næstkomandi? Hvernig á þjóðin að geta sagt já eða nei þegar það liggur ekki fyrir með ljósum hætti hver samningsmarkmiðin eru?