þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað algjört grundvallaratriði sem ríkisstjórnin virðist einhvern veginn skella skollaeyrum við og hún gefur mjög misvísandi upplýsingar um það hvert hún stefnir í þessum málum. Auðvitað liggur það alveg fyrir að ef þjóð er að sækja um í Evrópusambandsríkjaklúbbnum þá er ætlast til þess að hugur fylgi máli, að menn ætli að ganga í Evrópusambandið. Ég vitnaði hér áðan til samningsramma ESB frá 2010 þar sem segir beinum orðum að sameiginlegt markmið samningsaðila sé aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sú vegferð sem þá var farið í endaði í sneypuför þeirrar ríkisstjórnar. Menn ráku sig náttúrlega stöðugt á veggi vegna þeirra ströngu samningsmarkmiða sem voru sett. Ef þau markmið hefðu verið lögð á borðið í heiðarleika í byrjun hefði það sennilega orðið til þess að Evrópusambandinu hefði ekki fundist taka því að taka upp viðræður við okkur. Og það ætti að vera eins núna. Þetta kostar gríðarlegt fjármagn og átak. Stjórnsýslan okkar mun öll verða undir. Evrópusambandið dældi inn mörgum milljörðum í aðlögunarstyrki síðast og mun þurfa að gera það aftur núna og við í gríðarlegum útgjöldum. Auðvitað þurfa að vera einhver heilindi í þessu. Það þýðir ekkert fyrir mig að koma og langa til að kaupa einhverja húseign einhvers staðar og vera með einhverjar hugmyndir um verð sem er langt frá því sem seljandinn vill fá fyrir eignina. Ég legg þá bara á borðið eitthvert verð sem ég er tilbúinn að borga en fer ekki hærra og þá fara engar samningaviðræður af stað. Auðvitað er það alger óheiðarleiki gagnvart þjóðinni í þessu að samningsmarkmiðin skuli ekki vera klár og liggja hér til grundvallar og að það skuli að sama skapi ekki liggja algjörlega á borðinu gagnvart viðsemjendum okkar á hvaða forsendum við ætlum að fara í þessa vegferð.