þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni kærlega fyrir gott andsvar. Það er nefnilega lykilatriði hvert markmiðið er. Það er mjög áhugavert í nefndaráliti meiri hlutans að það er vitnað ansi oft, mjög oft jafnvel, til markmiðanna 2009, í þeim köflum sem við vitum að eru umdeildir, sjávarútvegur, landbúnaður, auðlindamál, orkumál — það er alltaf vitnað til þeirra markmiða í þingsályktunartillögunni. En þau eru ekki lögð fram beint, sem er mjög áhugavert vegna þess, nákvæmlega eins og hv. þm. Jón Gunnarsson kom inn á hér áðan, að þeir sem vilja fara í þessa vegferð vita að ef þau liggja á borðinu, þessi markmið, verður sagt: Nei, þitt tilboð í þetta hús er allt of lágt.