157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:24]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það kemur aftur að þessu sem ég var að nefna áðan. Þetta er auðvitað ákveðinn óheiðarleiki; það er ekkert hægt að orða það öðruvísi en að það sé þannig. Það er eins og það sé verið að reyna að villa um fyrir fólki. Æ, kíkjum bara í pakkann. Jú, við munum ekki leggja, eins og hæstv. umhverfis- og orkumálaráðherra sagði, vonlausan samning fyrir þjóðina. Hvað felst í vonlausum samningi? Gæti hann sagt okkur það? Hvað er vonlaus samningur? Hæstv. forsætisráðherra hefur slegið svipaðan tón, sagði að ómögulegur samningur yrði ekki lagður fyrir þjóðina. Hvað felst í því? Hver veit það? Þetta er allt saman eitthvert orðagjálfur sem engin innstæða er fyrir.

Hæstv. utanríkisráðherra er loks er farin að sýna sig hér í húsi þegar það fer að líða á þessa umræðu, er í fyrsta skipti að sýna þinginu þá virðingu að koma hér og a.m.k. hlusta. Þetta er náttúrlega með ólíkindum, þessi vinnubrögð, virðulegur forseti. Þetta verður sneypuför fyrir þessa ríkisstjórn og það sem verra er, fyrir þjóðina á alþjóðavettvangi.