þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð og þakka þeim þingmönnum sem hafa komið hingað í andsvör í kjölfarið. Ég ætla að leyfa mér að vera á svipuðum nótum og í fyrra andsvari og taka aðeins upp þessar rauðu línur. Í mínum huga, og mig langar til að heyra hvort hv. þingmaður er sammála því, er svo ótrúlega mikilvægt að allar rauðar línur, og rökstuðningur ríkisstjórnarinnar, séu kristalskýrar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þingsályktunartillagan sjálf og álitið sem henni fylgir — pólitíska ábyrgðin á málinu er í rauninni þar, framsetningin er þar. Stundum er orðræðan í þingsal og í fjölmiðlum á þann veg að hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar muni passa hitt og þetta. En það veit enginn hvort hæstv. orkumálaráðherra verður ráðherra þegar og ef slíkt ferðalag myndi raungerast. Það getur enginn leiðtogi í dag lofað að málin verði svona eða hinsegin. Í mínum huga er eina raunverulega haldreipið í málinu textinn, orðin sem eru lögð fram til samþykktar hér í þingsal. Mig langar til að heyra hvort hv. þingmaður er sammála mér um þessa analýsu.