157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:27]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Þetta er algerlega kórrétt hjá hv. þingmanni. Textinn skiptir öllu máli, það sem skrifað er skiptir öllu máli. Það sem er verið að sýna okkur hér er eitthvert leikrit út og suður þar sem ráðherrar og þingmenn stjórnarflokkanna eru mjög ósamstiga í sínum skilaboðum. Það er auðvitað algerlega óþolandi. Það er verið að leggja hér mál í dóm þjóðarinnar, í þjóðaratkvæðagreiðslu, og skilaboðin sem fólkið fær hér úti í feltinu, sem á að fara að kjósa, eru: Það er ekkert í hendi. Það er ekkert í hendi nema það sé skrifað. Rauðu línurnar, eins og hv. þingmaður kallar það, þurfa að vera alveg kristaltærar. Þær þurfa ekki bara að vera tærar gagnvart kjósendum innan lands í þjóðaratkvæðagreiðslu, þær þurfa líka að vera alveg á tæru gagnvart viðsemjendunum. Utanríkisráðherra kemur til með að ráða ferð. Umhverfis- og orkumálaráðherra verður ekkert í þeirri vegferð nema bara það sem kallað er eftir frá ráðuneytinu. Það er utanríkisráðherra sem ræður ferðinni. Hún hefur pólitíska ábyrgð á málinu. Hún hefur allt vald í þessu máli, hvernig það er presenterað á vettvangi viðsemjenda okkar. Það er þá að sama skapi ekki boðlegt að þinginu skuli vera boðið upp á það, í svona stóru og mikilvægu máli, að eiga að taka ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu þegar forsendurnar eru jafn óljósar og raun ber vitni. Það er bara svona: Hvað viljið þið ekki leyfa þjóðinni að ráða því hvort við kíkjum í pakkann? Þetta er miklu stærra mál. Ég er alveg viss um að ef við fengjum sjávarútvegsráðherra Íra í heimsókn, út af því hvernig þeir hafa upplifað Evrópusambandið, og myndum spyrja hann: Mynduð þið samþykkja það að Ísland væri með fulla aðild en algjörlega undanþegið sjávarútvegssáttmála Evrópusambandsins? Hann myndi bara biðja okkur vel að lifa.