157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:30]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og mig langar einmitt til að undirstrika og taka undir það að auðvitað er textinn sjálfur og rauðu línurnar — þetta er í sjálfu sér samningsumboð eins og hv. þingmaður kom inn á hér áðan. Þetta er þannig líka þessi rammi sem mótsamningsaðili hefur þá skýran frá þinginu og öll þjóðin sömuleiðis. Ég fæ oft þessa spurningu frá fólki: Hvað á ég að lesa? Í raun og veru ættu þessi gögn að vera með þeim hætti að þau væru fullnægjandi því að það er það sem ríkisstjórnin er að bera á borð, ef svo má segja. En mig langar til að nýta seinna andsvarið til að sækja í viskubrunn hv. þingmanns varðandi sjávarútveginn og spyrja: Hvaða áskoranir sér hv. þingmaður þegar t.d. er horft á samninga um deilistofna og sömuleiðis varðandi veiðar og samþættingu við vinnslu, eins og hefur verið áhersluatriði hér á landi?