þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Í fyrri ræðu minni vakti ég athygli á því að þjóðin ætti rétt á skýrum upplýsingum áður en hún væri beðin um að taka afstöðu til þess hvort hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Ég sagði að það væri ekki nóg að breyta orðalagi spurningarinnar ef ríkisstjórnin vildi ekki ræða efnið sjálft skilmerkilega og af hreinskilni. Athygli vekur að hæstv. utanríkisráðherra forðast að svara erfiðum spurningum eins og þeirri hvernig hún hyggist tryggja að breytingar verði gerðar á undirstöðureglum ESB, frumrétti sambandsins sem svo er nefndur, að því er varðar yfirráð Íslands yfir fiskimiðunum í mögulegum aðildarviðræðum. Hæstv. utanríkisráðherra var spurð að þessu beint í óundirbúnum fyrirspurnum á dögunum en gat engin svör veitt eða vildi það ekki. Þeir stjórnarþingmenn sem hafa tjáð sig í þessari umræðu tala um að sjá hvað sé í boði og að væntanlegar viðræður muni leiða það í ljós. Þetta er merkilegt orðalag vegna þess að í þessu máli liggja fyrir opinber skjöl frá Evrópusambandinu sjálfu sem segja með mjög skýrum hætti hvað aðild að ESB felur í sér og á hvaða forsendum aðildarviðræður fara fram. Annars vegar liggur fyrir álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 24. febrúar 2010 þar sem afstaða var tekin til umsóknar Íslands um aðild að sambandinu sem lögð var fram 16. júlí 2009. Hins vegar liggur fyrir samningsrammi Evrópusambandsins fyrir aðildarviðræðurnar við Ísland sem ráðherraráð ESB samþykkti 26. júlí 2010. Þetta eru ekki álit frá andstæðingum eða stuðningsmönnum aðildar heldur frumgögn frá Evrópusambandinu sjálfu. Skýrara getur það varla verið. Og hvað segja svo þessi skjöl? Þau segja í fyrsta lagi að aðildarviðræður snúist ekki um að semja upp á nýtt um grunnskipulag Evrópusambandsins. Í samningsrammanum segir beinlínis að aðild feli í sér viðurkenningu á réttindum og skuldbindingum sem fylgja kerfi Evrópusambandsins og stofnanaramma þess og að Ísland verði að taka þau upp eins og það er þegar til aðildar kemur.
Þetta er mjög mikilvægt atriði í þessari umræðu. Stundum er talað eins og aðildarviðræður séu eins konar opið samningaborð þar sem Ísland geti valið hvaða grunnreglur sambandsins verði teknar upp og hvaða reglum verði hafnað. En samningsrammi ESB lýsir allt öðru ferli. Umsóknarríki lagar sig að fyrirliggjandi regluverki sambandsins og það er grundvallarforsenda aðildarferlisins. Í samningsrammanum segir jafnframt að Ísland verði að fallast á niðurstöður annarra aðildarviðræðna eins og þær liggja fyrir þegar það gerist aðili að sambandinu. Í samningsrammanum segir jafnframt að ramminn nái ekki aðeins til sáttmálanna sjálfra heldur einnig til dómaframkvæmdar dómstóls ESB. Það er sérstaklega mikilvægt þegar rætt er um sjávarútvegsmál og þau fordæmi sem orðið hafa til innan réttarframkvæmdar sambandsins. Þar verður að hafa í huga að sameiginlega fiskveiðistefna Evrópusambandsins er ekki venjulegur samstarfsvettvangur milli sjálfstæðra ríkja heldur hluti af yfirþjóðlegu réttarkerfi sambandsins. Samkvæmt 3. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins fer sambandið með einkarétt á verndun lífrænna auðlinda hafsins. Í sömu grein sáttmálans er sambandinu einnig veittur einkaréttur til reglusetningar hvað varðar tollabandalagið, samkeppnisreglur innri markaðarins og sameiginlega viðskiptastefnu gagnvart ríkjum utan sambandsins. Þessi skipan var fest í sessi með Lissabon-sáttmálanum sem tók gildi 1. desember 2009. Aðildarríkin sinna daglegri stjórnsýslu og eftirliti með fiskveiðum innan eigin lögsögu en endanlegt lagasetningarvald um grundvallarreglur fiskveiðistjórnar liggur hjá stofnunum sambandsins. Þetta hefur verið staðfest í dómaframkvæmd dómstóls ESB þar sem komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að aðildarríkin geti ekki farið með sjálfstæðar valdheimildir á þessu sviði nema innan þess ramma sem sambandið setur. Þá segir einnig í samningsrammanum að aðlögunarfyrirkomulag megi aldrei fela í sér breytingar á reglum eða stefnumiðum Evrópusambandsins. Þetta er lykilatriði þegar því er haldið fram af þingmönnum meiri hlutans að mögulegt verði að semja um varanlega sérstöðu Íslands í sjávarútvegi. Aðildarríki geta fengið tímabundna aðlögun eða sérstakar útfærslur á ákveðnum þáttum en varanlegar undanþágur eru ekki í boði. Þetta hefur ítrekað komið fram af hálfu bæði stofnana og talsmanna ESB.
Virðulegi forseti. Eitt athyglisverðasta atriðið í framangreindum skjölum snýr að EES-samningnum. Í samningsramma ESB segir beinlínis að ákvæði EES-samningsins sem víkja frá samningsrammanum geti ekki talist fordæmi í aðildarviðræðum. Þetta er mjög afdráttarlaus yfirlýsing af hálfu Evrópusambandsins. Í henni felst að sú sérstaða sem Ísland hefur í dag innan EES, þar sem við stöndum utan sameiginlegu fiskveiðistefnunnar, utan landbúnaðarstefnunnar og utan tollabandalagsins, sé ekki grunnur að sambærilegri sérlausn innan fullrar aðildar að ESB. Þetta er mikilvægt vegna þess að stundum er látið í veðri vaka að EES-samningurinn sýni að auðvelt verði að semja um sambærilega stöðu innan ESB. Það er ekki rétt eins og skýrt kemur fram í samningsramma sambandsins.
Virðulegi forseti. Í áliti framkvæmdastjórnarinnar frá 24. febrúar 2010 er tekið fram með mjög skýrum hætti að verulegt átak verði nauðsynlegt á sviði fiskveiða í samningum við Ísland. Framkvæmdastjórnin taldi þannig frá upphafi að sjávarútvegsmálin yrðu eitt erfiðasta álitaefnið í aðildarferlinu. Í umfjöllun Morgunblaðsins frá 25. febrúar 2010 um þetta álit framkvæmdastjórnar ESB kom fram að kaflinn um sjávarútveg væri umfangsmestur í álitinu vegna þess hve íslenskur sjávarútvegur væri stór hluti hagkerfisins. Þar var jafnframt haft eftir framkvæmdastjórninni að Ísland yrði að fallast á að meginreglur og stjórn málaflokksins væri í höndum Evrópusambandsins og jafnræði aðildarríkja gilti um aðgang að fiskveiðilögsögunni. Í sömu umfjöllun kom einnig skýrt fram að framkvæmdastjórnin teldi að íslenskar reglur um bann við eignarhaldi útlendinga á kvóta, takmarkanir á fjárfestingum erlendra aðila og hömlur á eignarhaldi í fiskvinnslu samrýmdust ekki regluverki sambandsins. Þetta voru því ekki neðanmálsgreinar heldur hluti af þeim grundvallarbreytingum sem framkvæmdastjórnin taldi nauðsynlegar til að Ísland gæti gengið í sambandið. Þá kom jafnframt fram í álitinu að framkvæmdastjórnin teldi að íslenska landbúnaðarkerfið þyrfti að taka miklum breytingum við aðild og að verslun með landbúnaðarafurðir yrði færð undir samkeppnisreglur innri markaðar ESB. Slíkar breytingar myndu gjörbreyta rekstrarskilyrðum íslensks landbúnaðar og hafa mjög víðtæk áhrif. Tollverndin hyrfi og byggð myndi að öllum líkindum leggjast af víða um land. Er þetta virkilega framtíðarsýn Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins sem styður þessa háskaför?
Virðulegi forseti. Sjávarútvegurinn var skilgreindur sem sérstakur samningskafli í aðildarferlinu af hálfu ESB, 13. kaflinn, og því liggur fyrir að Evrópusambandið hefur frá upphafi lagt áherslu á að Ísland samræmdi löggjöf sína að sameiginlegu fiskveiðistefnunni. Þetta sýnir svart á hvítu að þetta er eitt af meginálitaefnum viðræðnanna frá sjónarhóli sambandsins sjálfs. Þess vegna hlýtur sú spurning að vakna hvað ríkisstjórnin hyggist semja um í fyrirhuguðum aðildarviðræðum. Hvað hyggst hún gefa eftir og hvað hyggst hún fá í staðinn? Þetta verður enn ljósara þegar litið er til þess sem ríkisstjórnin hefur sjálf nefnt sem mögulegan ávinning af aðild. Ekki getur verið um að ræða evruna því forsenda fyrir upptöku hennar eru Maastricht-skilyrðin um stöðugt verðlag, hóflegan halla á fjárlögum, sjálfbærar skuldir hins opinbera, stöðugt gengi og lága langtímavexti. Engin þessara skilyrða krefjast aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Við getum tileinkað okkur þau strax án þess að ganga í Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Evrópuför utanríkisráðherra og ríkisstjórnarinnar er ekki ferð í óvissunni í þeim skilningi að enginn viti hvað bíður handan við hornið. Fyrir liggur í frumskjölum Evrópusambandsins hvað er í pakkanum, hvaða reglur gilda, hvaða valdheimildir fylgja aðildinni og hverjar ekki og þessi skjöl hafa öll legið fyrir opinberlega síðan 2010. Því er ekki rétt að halda því fram að enginn viti hvað bíði Íslands í aðildarviðræðum. Á hinn bóginn er þetta mikil óvissuför þegar kemur að því að átta sig á hvað ríkisstjórnin hyggst fá í staðinn fyrir framsal fullveldis yfir auðlindum þjóðarinnar og öðrum mikilvægum réttindum. (Forseti hringir.) Þar liggur vafinn. Áður en þjóðin er beðin um að leggja af stað í slíka ferð á hún rétt á hreinskilinni umræðu um það hvað er raunverulega í boði og hvað ekki.