þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Í ljósi þess að Viðreisn var stofnuð utan um þetta eina mál, að Ísland gengi inn í Evrópusambandið, hefur það vakið furðu mína að hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar Viðreisnar fari í einhvern leik um að Evrópusambandið sé eitthvað annað en það er. Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir kom aðeins inn á varanlegar undanþágur. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann: Í ljósi þess að ekkert ríki innan Evrópusambandsins hefur fengið varanlega undanþágu frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins, telur hv. þingmaður einhverjar líkur á að Ísland fái undanþágu? Ef svo væri að hún fengist í samningaviðræðunum, telur hv. þingmaður einhverjar líkur á því að öll hin 27 ríkin sem fengu enga undanþágu muni samþykkja það? Þannig er það, öll ríkin þurfa að samþykkja undanþáguna. Er ekki undarlegt að við séum að tala um það að kíkja í pakkann þegar ekki hafa verið veittar neinar varanlegar undanþágur síðan á tíunda áratugnum? Ég get ekki séð að þetta sé neitt annað en blekking. Mér þykir það undarlegt, í ljósi þess að það vita allir að Viðreisn vill ganga inn í Evrópusambandið, af hverju við getum ekki rætt það hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið eða ekki. Hér kom fram hjá hv. þm. Grími Grímssyni áðan að Viðreisn snerist um eitthvað annað líka, um almannahagsmuni umfram sérhagsmuni. Þetta er náttúrlega mesta froða sem ég hef heyrt. Getur hv. þingmaður ekki tekið undir með mér að það er ekki verið að hugsa um almannahagsmuni þegar þú ert að gefa frá þér hluta af fullveldi þjóðarinnar?