157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:46]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er með ólíkindum þessi þráhyggja Viðreisnar utan um þetta eina mál sem sá flokkur hefur sett á oddinn og hefur verið með gjörsamlega á heilanum síðan 2016, frá stofnun. Ég tek undir með hv. þingmanni að þingmenn Viðreisnar og hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar hafa hér trekk í trekk, einnig á samfélagsmiðlum, í viðtölum og í rituðum greinum, reynt að telja þjóðinni trú um að Evrópusambandið sé eitthvað annað en það er. Það kom fram í máli mínu að aðildarríki geta fengið tímabundnar undanþágur eða tímabundna aðlögun á ákveðnum þáttum en það er ekkert til sem heitir varanleg undanþága. Því fengu Norðmenn til að mynda að kynnast þegar þeir voru í þessu ferli. Þeim var boðin tímabundin aðlögun að sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins í tíu ár en eftir þann tíma ættu þeirra fiskveiðar að lúta ákvörðunum og valdi frá Brussel. Ég tel engar líkur á því að Ísland muni fá varanlegar undanþágur og allt tal Viðreisnar og hæstv. utanríkisráðherra í þá veruna er blekking og það tók ég fram í ræðu minni áðan, enda hefur það ítrekað komið fram af hálfu bæði stofnana og talsmanna Evrópusambandsins. Ég skil bara ekki af hverju Viðreisn og ráðherrann geta ekki talað í takt við Evrópusambandið, þetta sama samband og þau vilja hlaupa inn í.