157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:48]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir svarið. Ég hlustaði á þjóðmál um daginn og þar var maður í viðtali, Orri Hauksson. Mér fannst hann koma með ágætissamlíkingu. Hún sagði að þetta væri eins og einhver vildi byrja í skátunum en hann vildi samt, áður en hann yrði meðlimur í skátunum, vera með það á hreinu að hann þyrfti ekki að taka þátt í útilegum og hann þyrfti ekki að syngja skátasöngvana en hann vildi samt ganga inn í skátana. Mér fannst þetta ágæt samlíking af því að þetta er eitthvað sem verið er að reyna að stilla upp hér, að Evrópusambandið sé einhvers konar val um að taka alltaf það besta en sleppa því versta. Við vitum sennilega báðar að svoleiðis er það ekki. Þess vegna velti ég fyrir mér: Er ekki svolítið skrýtið, ef við horfum bara raunsætt á Evrópusambandið, að einhver myndi segja já í ágúst sem vill ekki ganga inn í Evrópusambandið? Ég skil alveg að einhverjir geri það af því að það er verið að reyna að blekkja þjóðina með því að þetta séu einhverjir samningar um varanlegar undanþágur á meðan raunveruleikinn er sá að þetta snýst um það hvernig Ísland muni aðlaga sig að Evrópusambandinu og á hve löngum tíma. Þess vegna spyr ég: Getur verið að Viðreisn sé að stunda blekkingar af því að þau vita að þetta eina mál þeirra, að ganga inn í Evrópusambandið, fengist aldrei samþykkt af þjóðinni ef þau væru hrein og bein og heiðarleg um hvað það þýðir að ganga í Evrópusambandið?