157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:50]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir seinna andsvarið. Hér nefnir hv. þingmaður að Orri Hauksson hafi líkt þessu við það að ganga í skátana. Á síðustu vikum og mánuðum hefur mér stundum dottið í hug Forrest Gump sem kvikmynd var gerð um. Upphafsatriði þeirrar kvikmyndar er að hann er að borða konfekt og segir þar að lífið sé eins og konfektkassi og maður viti aldrei hvaða mola maður fær. Það á nefnilega ekki við um Evrópusambandið. Evrópusambandið er ekki einhver konfektkassi sem við getum farið og pikkað bestu molana. Ef þetta væri t.d. Nóa konfekt myndi ég bara velja fylltu molana, en það er bara ég. Það er ekki þannig. Við vitum nefnilega nákvæmlega hvað er inni í þessum málum, alveg sama þó að það sé reynt að blekkja okkur með einhverri annarri umræðu af hálfu stjórnarliða hér. Við getum nefnilega ekki farið af stað í þessa vegferð og haldið það að við búum við svo mikla sérstöðu og við séum allt öðruvísi heldur en þau 27 aðildarríki sem nú mynda Evrópusambandið. Hvert og eitt einasta þessara aðildarríkja hóf sína vegferð, hóf sínar aðlögunarviðræður með séróskir frá sínum löndum og fékk ekki eitt einasta samþykkt hjá Evrópusambandinu vegna þess að það er algjörlega kýrskýrt að við þurfum að beygja okkur undir regluverk Evrópusambandsins. Við erum bara ekki svona ofboðslega öðruvísi hér, Íslendingar, þó að við viljum halda öðru fram. Þess vegna finnst mér þetta mikil háskaför sem ríkisstjórnin er farin hér í. Ég óska eftir því að ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn séu heiðarlegri í þeim upplýsingum og í tali sínu hér til þjóðarinnar hvað varðar þetta mál.