þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er sama hvað liggur fyrir, sama hvaða staðreyndir er bent á um eðli Evrópusambandsins, t.d. hvernig Evrópusambandið er og hvernig það er að dragast aftur úr í samkeppni, þá lokar meiri hlutinn hér augunum og haldið er áfram að halda því fram að sambandið sé eitthvað allt annað en það er. Á sama tíma eru Evrópusambandslöndin sjálf farin að viðurkenna að þau séu komin í vandræði, að þau séu búin að reglugerðarvæða sig út úr samkeppni. Engu að síður halda hæstv. ráðherrar og þingmenn meiri hlutans hér áfram að loka augunum fyrir raunveruleikanum. Það er hluti af blekkingunni að við séum að kíkja í einhvern pakka. Nú held ég að flestir séu farnir að átta sig á því að það er ekki staðan. Fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu er mikill Evrópusinni, sennilega einn sá mesti Evrópusinni sem fyrirfinnst, og hann styður það og óskar þess, að eigin sögn, að öll lönd í Evrópu verði hluti af Evrópusambandinu. Þessi maður, Guy Verhofstadt, kom einmitt á fund Viðreisnar og hélt erindi, ég held í fyrra frekar en hittifyrra, en hann hefur komið ágætlega inn á það, og það má til að mynda finna á þræði á YouTube, að það sé ekki í boði að handvelja bestu bitana og skilja hina eftir, enda sé Evrópusambandið ekki einhver matseðill þar sem hægt sé að velja eitt úr og sleppa öðru. Ef eitt land fengi varanlega undanþágu á mikilvægu sviði myndu hin 27 ríkin augljóslega óska eftir því sama. Og ég bendi á að Evrópusambandið virkar þannig að öll löndin þurfa að samþykkja nýjan aðildarsamning.
Það er mjög mikilvægt að fólk átti sig á því, af því að hér er mikið talað um sjávarútvegsmál — í raun og veru þyrftum við kannski að hafa meiri tíma til að geta talað um mörg önnur mál en sjávarútvegurinn er okkur hér á Íslandi mikilvægur. Þá er nauðsynlegt að við vitum að ekkert ríki innan Evrópusambandsins hefur fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Það er ekki af því að það séu ekki sjávarútvegsþjóðir í Evrópusambandinu og það er ekki af því að enginn hafi óskað eftir því. Nei, undanþága hefur ekki verið veitt vegna þess að Evrópusambandið gengur út á það að það séu ekki varanlegar undanþágur. Samningaviðræður snúa einungis að því hvernig ný ríki ætla að aðlagast Evrópusambandinu eins og það er og á hve löngum tíma. Því miður hefur umræðan hér heima allt of mikið farið í að ræða um Evrópusamband sem er ekki raunverulegt Evrópusamband. Ég leyfi mér að fullyrða að flestir hv. þingmenn Viðreisnar viti nákvæmlega hvað Evrópusambandið er en þeir óttast að þjóðin muni ekki segja já í ágúst ef umræðan snúi að því hver raunveruleikinn er. Enda kom það skýrt fram þegar hv. þm. Sigríður Ásthildur Andersen spurði hæstv. utanríkisráðherra hvort samningaviðræðum yrði ekki sjálfhætt ef við fengjum ekki varanlega undanþágu frá frumréttinum sem lýtur að auðlindum okkar. Hæstv. utanríkisráðherra var ekki tilbúin að segja að þá yrði viðræðum sjálfhætt. Engu að síður kemur sami hæstv. ráðherra, og margir aðrir, í fjölmiðla og segir að byrjað verði á erfiðustu köflunum og undanþágur fengnar fyrir auðlindir okkar. Af hverju? Jú, vegna þess að það eru erfiðir kaflar en því miður er þetta eitthvað sem ég treysti ekki vel í ljósi þess að hæstv. ráðherra vildi ekki segja að viðræðum væri sjálfhætt ef við fengjum ekki varanlegar undanþágur.
Þessar undanþágur sem er vitnað til voru allar samþykktar á tíunda áratugnum. Evrópusambandið hefur hætt þeim núna og samningaviðræður við það ríki sem síðast gekk í Evrópusambandið, Króatíu, tóku átta ár og þeir fengu enga varanlega undanþágu. En hver man ekki eftir öðrum blekkingum, til að mynda loftslagssköttunum? Okkur var sagt fyrir tveimur eða þremur árum að við hefðum fengið varanlega undanþágu frá loftslagssköttum Evrópusambandsins. Hvað kemur nú í ljós? Við fengum bara aðlögunarfrest. Það er það sem ég óttast, að því verði haldið á lofti og því haldið fram að við værum að fá undanþágur þegar við værum í raun og veru bara að semja um einhvern tímaramma fyrir aðlögun. Því var haldið blákalt fram að við hefðum fengið undanþágur frá loftslagssköttum en undanþágan sneri að því að við þyrftum ekki að byrja að borga fyrr en eftir eitt eða tvö ár. Og núna eru þessir loftslagsskattar að skella á okkur, flutningsfyrirtækjunum okkar, flugfélaginu Icelandair, af fullum þunga. Þessi nýi skattur er talinn í milljörðum, sem okkur var sagt að við hefðum fengið undanþágu frá. Og öll vitum við á hverjum þetta bitnar á endanum. Þetta bitnar á heimilum landsins, samkeppnisstöðu Íslands o.s.frv.
Ég vil koma inn á annað sem mér finnst afleitt. Ég fullyrði að ég er ekki ein um að hafa átt samtöl við Evrópuþingmenn, ég hef verið að hitta nokkra þingmenn Evrópusambandsins, og þeir hafa verið mjög spenntir að ræða þessa atkvæðagreiðslu við mig. Og af hverju hafa þeir verið spenntir? Jú, vegna þess að mögulega sé loksins að koma land í Evrópusambandið sem leggi meira til þess en það taki út. Svo eru það styrkveitingar Evrópusambandsins. Það eru rök sem oft hafa verið nefnd, að við fáum svo mikið af styrkjum ef við göngum í Evrópusambandið. Það er eiginlega þetta tvennt, vextirnir og styrkirnir, sem er nefnt. Í fyrsta lagi munu vextir ekki lækka sjálfkrafa þó að því sé iðulega haldið fram. Og eins og hefur verið komið inn á þá tækjum við ekki upp evru þó að við værum komin inn í Evrópusambandið án þess að vera búin að koma okkar málum í lag hér heima fyrst. En sumum þykir það hljóma vel þegar Evrópusambandið talar um styrki, sjóði og milljarða sem eigi að flæða til verkefna um alla Evrópu og Ísland fái bráðum að taka þátt í því. En hversu mikið af þessum peningum skattgreiðenda — jú, það erum bara við, ég og þú, heimili landsins og fyrirtæki, sem munum greiða peningana sem er svo útdeilt — fer í raun í verkefnin sjálf og hversu mikið fer í kerfin í kringum þau? Vandinn við svona risavaxin yfirþjóðleg styrkjakerfi er að þau verða oft mjög ópraktísk, flókin og fjarlæg raunveruleikanum. Fyrirtæki, sveitarfélög og frumkvöðlar þurfa að eyða gríðarlegum tíma í umsóknarferli, skýrslugerðir og reglugerðarfargan til að eiga möguleika á styrkjum. Oft þarf sérstaka ráðgjafa til þess eins að skilja kerfið. Það er einfaldlega erfiðara að fylgja því eftir hvernig fjármunirnir nýtast í raun, það verður erfiðara eftir því sem báknið stækkar. Það verður erfiðara eftir því sem fjarlægðin er meiri, eftir því sem þetta er lengra frá okkur, að vita hvað er best fyrir hagsmuni Íslands. En þetta er það sem margir líta á sem eitthvað jákvætt. Við sjáum líka að stór reynslumikil fyrirtæki með sérfræðinga í styrkjaumsóknum hafa oft forskot en minni aðilar sitja eftir og í ofanálag verður þetta oft styrkjaumhverfi í kringum stofnanirnar sjálfar. Við tökum skatt frá fólkinu og styrkjum svo ríkisfyrirtækin sjálf í staðinn fyrir að taka það í gegnum arðinn og vera ekki að rukka skattgreiðendur á þennan hátt. Eins og á við um Evrópusambandið þá lifir styrkjakerfi Evrópusambandsins að hluta til fyrir sjálft sig. Hvað haldið þið að það vinni margir í kringum þetta? Það er bara þannig að kerfin minnka sig aldrei sjálf. Eftir því sem báknið verður stærra þeim mun meiri líkur eru á að það stækki og stækki. Kerfin eru ekki að fara að minnka, enda sjáum við, alla vega geta margir innan Evrópusambandsins sjálfir séð það, að það stefnir í óefni vegna þess að kerfið stækkar og stækkar. Það má benda á Draghi-skýrsluna sem er margumtöluð, hún bendir á þetta. En hvað gerist? Kerfið heldur bara áfram að stækka. Það er komið svolítið síðan sú skýrsla kom út. Það er vitað um vandann en það er ekki auðvelt að minnka bákn af þessum stærðarflokki.
Frú forseti. Ég hef ekki komist í gegnum ræðuna mína þannig að ég óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá.