157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:03]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ræðu. Hv. þingmaður kom ágætlega inn á það að sum ríki þurfa að greiða meira heldur en að fá til baka. Því miður hefur þetta verið kannski upp á síðkastið fyrir Evrópusambandið eins og í Gleðibankanum um árið þar sem menn leggja ekki inn, taka bara út. Því er svo sem eðlilegt að þeir þingmenn sem hv. þingmaður hefur verið í samskiptum við upp á síðkastið séu fegnir að loksins sé nú eitthvert ríki sem komi til með að leggja til eitthvað meira með sér heldur en það fær til baka. Það hefur nú kannski alveg verið skýrt í þeirri umræðu sem hefur átt sér stað hér að ég held að það sé eitt af þeim fáu atriðum sem við deilum ekki um hér í þessum sal að íslenska ríkið er sennilega eitt ríkasta ríki veraldar hvað það varðar og þar af leiðandi er eðlilegt í því samhengi að menn leggi eitthvað til málanna, til sameiginlegra sjóða. Það er kannski aðalástæðan fyrir því að við setjum ákveðna varnagla þegar talað er um að þetta sé svo ofsalega spennandi og góður kostur að ganga í faðm Evrópusambandsins vegna þess að þá verði hér allt betra. Mér fannst það áhugavert í ræðu hv. þingmanns þegar hún kom inn á þessa þætti og það flækjustig sem getur orðið þegar ríki er orðið aðildarríki að bákninu, eins og við köllum það stundum. Það er akkúrat, held ég, mergur málsins, að þegar við erum með ríkt ríki eins og Ísland sem leggur meira til en það tekur út þá hljóta þar af leiðandi (Forseti hringir.) lífskjör á Íslandi að gefa eftir. Er hv. þingmaður sammála mér um það?