þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og mig langar að halda áfram á svipuðum slóðum varðandi stöðu Íslands. Staðan sem við erum í skapast fyrst og fremst vegna þess að við erum auðlindadrifið hagkerfi. Þá kemur stóra spurningin sem við þurfum að fá svar við og sem er klárlega í mínum huga: Þarf að vera samningsmarkmið? Samningsmarkmið þarf að vera skýrt þegar kemur að því hvernig yfirráðin verða yfir þeim auðlindum sem við byggjum okkar velferð á. Hv. þingmaður er gleggri en margir, flestir jafnvel, að rýna í ákveðin gögn og hefur farið hér mikinn í ræðustól Alþingis hvað það varðar. Mig langar að beina spurningu til hv. þingmanns sem snýr að þessum varanlegu undanþágum sem hafa verið til umræðu. Ég held að það sé nokkuð ljóst, miðað við söguna frá 2004, að ekki neitt ríki hefur fengið varanlega undanþágu. En það er þetta sem hefur verið talað um af hendi stjórnvalda, ríkisstjórnar Íslands, að það verði ekki haldið áfram í viðræðum nema það sé kýrskýrt að við verðum með varanleg yfirráð yfir sjávarauðlindinni t.d., yfir orkuauðlindunum, öllum okkar auðlindum. En hvernig ætli standi á því að þess er ekki getið skýrt í samningsmarkmiðum fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu?