157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Í annarri ræðu minni um þetta mál langar mig að koma inn á nokkur efnisatriði eftir að hafa varið fyrstu ræðu minni í að reyna að ná utan um stóru myndina sem við okkur blasir. Það er auðvitað kúnstugt að fylgjast með því með hvaða hætti málið hefur breyst frá því það var lagt fram hér í þinginu. Í stað þess að ríkisstjórnin og fulltrúar hennar, utanríkisráðherra sérstaklega, segi: Treystum við ekki þjóðinni? Af hverju má þjóðin ekki kíkja í pakkann og sjá hvað er í boði? Ef þjóðin segir já 29. ágúst þá fær þjóðin að taka afstöðu til samnings sem liggur á borðinu að afloknum aðlögunarviðræðum. Þetta voru skilaboðin. En hvað hefur gerst í millitíðinni? Staðan er allt í einu sú að það er kominn þriðji fasinn. Þetta birtist fyrst þegar hæstv. forsætisráðherra lýsti því yfir að ríkisstjórnin myndi aldrei leggja samning í dóm þjóðarinnar sem henni, og henni í skilningnum hæstv. forsætisráðherra, ekki henni ríkisstjórninni, hugnaðist ekki. Þetta voru nýjar fréttir. Menn töldu mögulegt að þetta væri svona sagt lítt ígrundað og væri ekki raunin. En svo fylgdi í kjölfarið hv. þm. Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, og síðan formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartoszek, og upplýstu efnislega um sömu afstöðu, að það yrði tekin sérstök afstaða til þess hvort íslensk þjóð fengi að taka afstöðu til samningsins þegar þar að kæmi. Síðan rammast þetta nú endanlega inn hér síðastliðinn föstudag í fyrirspurnatíma þegar hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, upplýsti með miklum bravör að það yrði aldrei lagður undir þjóðina neinn samningur sem ríkisstjórninni hugnaðist ekki.

En þá kemur að því áhugaverða í þessu öllu. Fyrir nokkrum dögum síðan varð stjórnmálaflokkurinn Viðreisn tíu ára. Ég var bara að átta mig á því að stjórnmálaflokkurinn Viðreisn er jafn gamall Lottu dóttur minni, það er ágætt að muna það þannig. Það eru tíu ár síðan Viðreisn var stofnuð. Hvernig atvikaðist það nú að Viðreisn var stofnuð eða hvert var tilefni þess að Viðreisn varð til? Tilefnið var að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hafði haft af landsmönnum það tækifæri að fá að tjá sig um Evrópusambandsmál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvað gerist núna? Það liggur hér fyrir þingmál þar sem segir: Það verður þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst um hvort eigi að fara í aðlögunarviðræðurnar, þó að það sé öðruvísi orðað, og síðan fær þjóðin að taka afstöðu til niðurstöðu þeirra viðræðna að þeim afloknum. En nú er allt breytt. Það er auðvitað einhvers lags pólitískur ómöguleiki hefði maður haldið að Viðreisn, af öllum flokkum, tíu ára gömul, sé nú á þeim stað að ætla mögulega að hafa af landsmönnum tækifæri til að tjá sig og taka afstöðu til niðurstaðna aðlögunarviðræðna. Þetta eru alveg nýjar fréttir og krúttlegar, skemmtilegar að mörgu leyti í því samhengi að Viðreisn var stofnuð með þetta í huga, að bregðast við því að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar hefði haft tækifæri til að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu af landsmönnum. Það varð bara að halda þessu til haga.

Mig langar að segja nokkur orð um tolla og rekstrarskilyrði fyrirtækja. Það verður að halda svona smáatriðum til haga, eins og því til að mynda að tollar á kínverska rafbíla eru í dag 0% en ef við göngum inn í Evrópusambandið verða þeir 30–40% til að vernda evrópska bílaframleiðslu. Telja menn almennt að þetta verði til hagsbóta fyrir land og þjóð? Telja menn að þetta verði jákvætt gagnvart þróun verðbólgu? Telja menn að þetta verði jákvætt yfirhöfuð? Mér þætti gaman að heyra einhvern stjórnarliða — fyrir þá sem eru að horfa á í sjónvarpinu núna er áhugavert að halda því til haga að það er enginn stjórnarliði hér í sal nema hv. sitjandi varaforseti. Ég veit það af eigin reynslu að hv. varaforseti getur ekki annað en setið í sæti sínu nú um stundir. Utanríkisráðherra er sannarlega ekki hérna en það má þó segja að hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, er hér á mælendaskrá. Ég held að það séu þrír, í mesta lagi fjórir þingmenn, í að hæstv. ráðherra komist að með ræðu sína en ég veit að menn hefðu hleypt hæstv. ráðherra fram fyrir hefði ráðherrann óskað eftir því. Hér bíða menn spenntir eftir því að hæstv. ráðherra mæti til umræðunnar.

Evrópusambandið er tollabandalag. Það er mjög margt í þeim efnum sem verður okkur mótdrægt í ljósi þess að þegar gerðir samningar, fríverslunarsamningar sem stangast á við það sem segir í regluverki og samningum Evrópusambandsins, falla niður. Það er býsna margt sem hefur áunnist í þeim efnum á undanförnum árum og áratugum og það verður gefið eftir haldi áfram sem horfir. Við erum auðvitað að horfa á efnahag Evrópusambandsins mjög veikan. Staðan í Þýskalandi er auðvitað þyngri en tárum taki þar sem hagvöxtur hefur verið hverfandi yfir mjög langt árabil. Frakkland er í henglum með ófjármagnað lífeyriskerfi og óburðugan vinnumarkað og svo mætti áfram telja. Ofregluvæðingin er, að því er virðist, gegndarlaus og jafnvel allar heimsins Draghi-skýrslur virðast ekki duga til að hjálpa mönnum að vinda ofan af því.

EST-kerfið sem er svona fjarlægðarskattur fyrir okkur hér á Íslandi — sú hugmynd verður ekki til á Alþingi. Þetta kemur frá Brussel og er innleitt þar í gegnum umhverfishluta þess regluverks alls og er að valda verulegu tjóni fyrir hagsmuni lands og þjóðar. Við vitum að flugfélagið Play fór í þrot daginn fyrir eindaga EST-gjalda. Við vitum að Icelandair finnur verulega fyrir þessum gjöldum. Við vitum að skipafélögin finna verulega fyrir þessum gjöldum. Þetta heldur áfram, mallar í þeim takti sem verið hefur og gerir rekstrarskilyrði fyrirtækja á Íslandi slæm og eykur kostnað okkar borgaranna allra og allra fyrirtækja í landinu. Þetta er einhvern veginn það sem blasir við okkur úr ESB-ranninum hvað rekstrarskilyrði fyrirtækja og heimila varðar. Það er hreinlega alveg ótrúlegt að ríkisstjórnin ætli sér með þeim hætti sem hér blasir við að vona að bara í sumarfríum, í kjölfar sumarfría, klaufist landsmenn til að segja: Ja, ætli sé ekki best að leyfa Þorgerði Katrínu, Kristrúnu og fylgitunglum að þreifa aðeins á þessu Evrópusambandi, að kíkja í pakkann. En það er engan pakka að kíkja í. Pakkinn er galopinn og í honum er Evrópusambandið eins og það er. Auðvitað væri eina vitið að spyrja í þjóðaratkvæðagreiðslunni: Viltu ganga í Evrópusambandið? En það er ekki spurningin.

Hitt atriðið sem kemur fram í þingsályktunartillögunni varðar tímasetninguna. Það er algjörlega ótrúlegt að hér ætli menn, ríkisstjórnin, hæstv. utanríkisráðherra, að keyra á þessa atkvæðagreiðslu 29. ágúst að því er virðist án nokkurra efnislegra raka. Ef í öllu falli væri nú einn stjórnarliði í salnum sem gæti tekið til máls væri áhugavert að heyra hver rökin fyrir 29. ágúst eru því ég hef ekki heyrt þau enn þá. Það að ætla að keyra hér á þjóðaratkvæðagreiðslu rétt áður en þing kemur saman rammar það bara inn að ríkisstjórnin vill sem minnsta umræðu, vill að þetta komist til atkvæða á tíma sem fólk er annars hugar (Forseti hringir.) og hefur lítinn áhuga á þessum málum og sambærilegum. Það er enginn bragur á því. Ég bara hvet hæstv. ríkisstjórn til að skoða þetta mál upp á nýtt (Forseti hringir.) og reyna að gera það og útfæra þannig að einhver bragur sé á.