þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef svo sem ekki séð fréttina sem hv. þingmaður vitnar til. Mér finnst það þó í samræmi við það sem Írar lentu í hvað það varðar að það er í sjálfu sér ekkert varanlegt innan Evrópusambandsins; það eru undanþágur en þær eru ekki varanlegar. Það er hægt að breyta reglunum innan sambandsins. Það er hægt að gera þetta þannig, eins og hv. þingmaður kemur inn á, að ný ríki hafi ekki neitunarvald fyrstu árin o.s.frv. Ég þekki það ekki til hlítar, enda er ég ekki búinn að lesa þessa frétt, hvers vegna verið er að fara þessa leið. Sennilega er það þó vegna þess að Evrópusambandið hefur verið að taka inn fjöldann allan af ólíkum ríkjum. Sennilega líta mörg þeirra ríkja á Evrópusambandið eins og gleðibanka þar sem menn leggja ekki neitt inn heldur taka bara út; sennilega þarf því að fara þessa leið. En ég reikna nú með að fylgjendur aðildar á Íslandi komi til með að segja að þetta eigi ekki við um okkur vegna þess að við séum ríki sem komi til með að leggja inn og taka minna út. Það kæmi mér ekki á óvart að það yrði svarið. En aftur á móti kristallast í þessu það sem við höfum verið að vara við í umræðunni sem snýr fyrst og fremst að því að það er ekki til neitt sem heitir varanlegt innan Evrópusambandsins.