þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mér fannst honum bara farnast vel, ekki síst í ljósi þess að það kom nú fram að hann hefði ekki lesið fréttina. Engu að síður er þetta einmitt sú lína sem fréttin ávarpar, sem er þetta sem ég endaði á að spyrja um varðandi nettógreiðendur. Þarna á að flýta fyrir mögulegri aðild ríkja sem liggur fyrir að verða ekki nettógreiðendur, sem aftur eykur þá byrðarnar á þau ríki sem eru nettógreiðendur. Hér hefur mikið verið talað um að Evrópusambandið muni koma með alls konar styrki í einhverjar vegabætur úti á landi, einhverja byggðastyrki, væntanlega svipað og gert var fyrir Finna og Svía varðandi landbúnaðinn. En eftir stendur að þrátt fyrir alla þessa styrki hafa þingmenn úr meiri hlutanum loksins viðurkennt, bæði hér inni og í podcast-þáttum, að Ísland verður nettógreiðandi sem þýðir á íslensku að þrátt fyrir alla styrkina þá greiðum við meira inn en við tökum út. (Forseti hringir.) Þess vegna má kannski segja að gleðibankatilvísun hv. þingmanns hafi verið svolítið skondin. Spurning mín er þessi, frú forseti: Er einhver gluggi sem ég er ekki að sjá inn um þarna? Er ekki algjörlega ljóst að við verðum alltaf nettógreiðendur?