þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég held að það sé alveg ljóst að þau ríki sem standa betur heldur en mörg hver sem þurfa frekar á stuðningi að halda, frekar en t.d. Ísland og sömuleiðis Finnar og Svíar, verða nú frekar að leggja meira til en að fá til baka. Ég vil bara leiðrétta mqisskilning hér sem snýr að því að það er alltaf komið inn á það að Finnar og Svíar hafi fengið svo rosalega mikinn stuðning til landbúnaðar. Það er ekki þannig. Finnar og Svíar fá heimild til að bæta ofan á þann stuðning sem Evrópusambandið borgar. Höfum það á hreinu. Það nákvæmlega sama kemur til með að eiga við um Ísland ef menn gera þau leiðu mistök að fara þá leið að ganga til liðs við Evrópusambandið.