þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða ræðu. Það er samt undarlegt að nú er klukkan að verða tíu um kvöld og í byrjun þingdags var okkur lofað því að hæstv. utanríkisráðherra tæki þátt í umræðunni. Ég velti fyrir mér, þar sem ég sé að hún er skráð hér á mælendaskrá en færist alltaf neðar og neðar, hvort hún ætli ekki að taka þátt. Hér virðist staðan vera sú að við erum búin að ræða þetta mál, almennir þingmenn, í tvo hálfa daga og núna er þetta þriðji dagurinn, sem er ekki mikið í svo stóru máli, en engu að síður koma hv. þingmenn úr meiri hlutanum ekki í andsvör til að neita fyrir það sem við erum að segja. Ég er því farin að hallast að því að þeir vilji bara keyra þessa umræðu í gegn í einhvers konar flýti, því að ekki fáum við að sjá leynigögnin. Það mæðir því svolítið á hv. þingmanni núna, hvort hann geti útskýrt fyrir mér, af því að hann fór ágætlega yfir tollverndina í sinni ræðu, hvaða þýðingu það hefur fyrir matvælaöryggi á Íslandi ef tollverndin er afnumin. Hvaða þýðingu hefur það fyrir matvælaöryggi á Íslandi? Og ef hann hefur smá meiri tíma, hvort hann gæti jafnvel útskýrt fyrir þeim sem eru kannski ekki jafn mikið inni í þessu og við hér í þingsal, sem erum að vinna í þessu alla daga, í fáum orðum hvert mikilvægi tollverndar er almennt fyrir íslenskan landbúnað.