þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og mig langar kannski til að koma aðeins betur inn á tollvernd og þær mögulegu samkeppnishömlur sem hún getur veitt. Getur hv. þingmaður komið örlítið inn á muninn á því sem íslenskir bændur standa frammi fyrir þegar kemur að heilnæmi, til að mynda er oft búið að ræða hér sýklalyfjaónæmi, og að það sé kannski einhver önnur ástæða heldur en bara tollverndin, að ástæðan sé í raun og veru heilnæmið? Er það rétt skilið hjá mér, ekki bara það að landbúnaður þrífist heldur sé þetta tvíþætt? Það er kannski það sem ég er aðeins að reyna að koma inn á. Svo af því að við höfum enga fulltrúa meiri hlutans til að spyrja og hv. þingmaður kom ekki inn á það en hann kom inn á ýmsar afleiðingar þess að ganga í Evrópusambandið — var bara ein mínúta? (Forseti (EÁs): Já. )Þá verð ég að láta þetta duga í bili.