þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sitt seinna andsvar. Það sem hefur ekki verið mikið rætt sem tengist fæðuöryggi og matvælaöryggi sömuleiðis er vernd búfjárstofna. Við börðumst með kjafti og klóm fyrir þó nokkuð mörgum árum þegar kom að því hvort það mætti flytja hér inn ógerilsneydd egg, lifandi skepnur o.s.frv. Jú, við höfðum þann slag í gegnum EES-samninginn og EFTA en ég óttast að við gætum orðið undir í þeim slag ef við værum aðilar að Evrópusambandinu, þ.e. að geta staðist það og varið okkar búfjárstofna fyrir óværu vítt og breitt um heiminn ef við erum innan Evrópusambandsins vegna þess að þar gilda allt allt aðrar reglur um flutning lifandi dýra heldur en gilda hjá okkur.