157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:58]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Mig langar að vera á svipuðum nótum og hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson og ræða við þingmanninn um landbúnaðinn. Ég er fullkomlega sammála hv. þingmanni um að það ætti náttúrlega frekar að bæta í tollverndina en hitt, bara þannig að það sé sagt. (Gripið fram í.) Tollvernd fyrir íslenskan landbúnað er lykilatriði. Ég sé að Jens Garðar Helgason fer mikinn hérna í hliðarsal, nánast. Ég heyrði kynntar til leiks langvarandi undanþágur í andsvörum í síðustu viku þar sem þingmaður Samfylkingarinnar var kominn í þrot. Þingmaður Samfylkingarinnar var kominn í þrot varðandi það að það eru engar varanlegar undanþágur frá neinu hvað Evrópusambandið varðar þannig að hann kynnti til leiks nýtt hugtak, langvarandi undanþágur, sem enginn veit hvað þýðir.

En aftur varðandi landbúnaðinn: Hv. þingmaður kemur inn á að tollverndin, og það er þó eitt sem er alveg skýrt í nefndaráliti meiri hlutans, eitt af því fáa sem er skýrt í nefndaráliti meiri hlutans, á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum myndi falla niður með aðild að tollabandalagi ESB. Mig langar fyrst að spyrja þingmanninn: Finnst honum ásættanlegt að bera slíkt á borð fyrir bændur þessa lands, fyrir byggðirnar í landinu, að það eigi bara að kasta hér inn handklæðinu og semja burt tollvernd fyrir íslenskar landbúnaðarvörur? Það er ekki einu sinni verið að semja, það er bara samþykkt; burt með tollverndina. Telur þingmaðurinn ekki (Forseti hringir.) að komi til slíks muni það hreinlega gera út af við landbúnað eins og við þekkjum hann í dag, (Forseti hringir.) gera út af við fæðuöryggi og þar með þjóðaröryggi? (Forseti hringir.) Innlend matvælaframleiðsla gæti hreinlega lagst af hér og þar um landið.