þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þetta voru nú nokkrar spurningar sem ég þarf að svara á stuttum tíma. Fyrst varðandi innflutning matvæla og kaupmanninn eða verslunina. Ef við horfum enn og aftur til Finnlands, hvað gerðist þar? Jú, tekjur bænda drógust saman um 40% en finnskir neytendur urðu ekki varir við þessa lækkun. Matvælaverð lækkaði ekki um það sem búið var að lofa þeim, miðað við það hvað finnskar afurðir hefðu átt að lækka um í verði. Þar af leiðandi skilaði þetta sér ekki til neytenda að fullu og við vitum nokkurn veginn að það kemur ekki til með að gera það. Lykilatriðið í þessu öllu saman, hvort sem það eru sérhagsmunir eða almannahagsmunir, er að það eru klárlega almannahagsmunir, frú forseti, að við verjum hér innlenda matvælaframleiðslu, þjóðinni til heilla. Um það snýst þetta. Þetta snýst ekkert um einhverja sérhagsmuni. Þetta snýst um almannahagsmuni.