þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það er eiginlega svolítið athyglisvert að byrja á því að velta fyrir sér hver var eiginlega að biðja um þessa ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar. Ekki var það þjóðin. Ekki var það hæstv. forsætisráðherra í aðdraganda kosninga. Ekki var það verkalýðshreyfingin og ekki var það atvinnulífið í landinu. Og hvað þá íslenskir bændur. Það var enginn að biðja um að það yrði farið í þessa vegferð, enginn. Og það var enginn að biðja um akkúrat á þessum tímapunkti að kljúfa íslensku þjóðina í herðar niður í afstöðu til þessa stórpólitíska máls. Það er verið að keyra á þetta mál. Hér erum við með þingsályktunartillögu í einu stærsta máli sem snýr að fullveldinu og stjórnarskránni — það á að keyra á þetta mál — og þingsályktunartillagan er þrjár blaðsíður. Hér koma hv. stjórnarliðar upp, þeir sem koma þá upp, og virðast hafa litla sannfæringu fyrir málinu. Hér eru aðallega bara einhverjar fabúleringar um hvað mögulega væri hægt að fá. Það er verið að ginna fólk til að halda að mögulegt sé að fá einhverja styrki og það væri nú gott fyrir íslenska bændur að verða einhverjir styrkþegar.
Virðulegur forseti. Þetta er bara herkostnaður hæstv. forsætisráðherra til að halda ríkisstjórnarbekknum saman. Það er einn smáflokkur á þingi sem hefur þetta á dagskrá og hefur þetta á stefnuskrá sinni og þess vegna stöndum við hér í dag og þess vegna erum við að fara að leiða þjóðina í þessa vegferð 29. ágúst. Það sést best á fjarveru ráðherrabekksins. Þar sést best á þögn allra hæstv. ráðherra í einu þeirra stærsta máli, sérstaklega hæstv. forsætisráðherra, og hér lætur ekki nokkur hæstv. ráðherra sjá sig og hvað þá að koma upp í pontu.
Virðulegur forseti. Við erum með ríkisstjórn sem er uppgefin. Hún er búin að kasta inn handklæðinu, hún hefur enga stjórn á eigin neyslu; hún eyðir meira af almannafé en hún aflar, hækkar skatta og gjöld til að standa undir eigin neyslu og eigin fjárhagslegu óstjórn og hefur enga stjórn á efnahagsmálunum eins og sjá má á verðbólgu, vöxtum og atvinnuleysi. Það er örvæntingarfull ríkisstjórn sem í þessum aðstæðum ákveður að leggja til að framselja fullveldi þjóðarinnar, veikja vald Alþingis, elsta löggjafarþings í heimi, til yfirþjóðlegs valds. Það er örvæntingarfull ríkisstjórn sem gerir það.
Ég skrifaði undir drengskaparheit um að standa vörð um og verja stjórnarskrá Íslands. Því mun ég aldrei samþykkja framsal á fullveldinu til yfirþjóðlegs valds og ég mun aldrei samþykkja það að framselja að öllu eða einhverju leyti yfirráð Íslands, Íslendinga, yfir auðlindum landsins.
Virðulegur forseti. Hér er talað um áframhald af þeim viðræðum sem hófust hjá síðustu vinstri stjórn. Þetta á að vera áframhald. En þá skulum við líka hafa það á hreinu að síðasta vinstri stjórn sem hóf þessa vegferð hóf ekki vegferðina á því að segja þjóðinni að hér væri verið að kíkja í pakkann. Það var bara hrein og bein aðildarumsókn, enda vissi sú ríkisstjórn að þú sækir ekki um aðild að neinum alþjóðlegum stofnunum eða samböndum án þess að þú ætlir raunverulega að ganga inn. En einhvern veginn hefur almannatengsladeild og spunadoktorum ríkisstjórnarinnar tekist að taka þessa umsókn, sem er aðildarumsókn, og breyta henni yfir í það að hún sé að kíkja í pakkann, að vita meira og núna er síðasta slagorðið: Segjum já við tækifærunum. Í öllu þessu tali er svo mikið ósamræmi. Hvort erum við að tala um tveggja eða þriggja þrepa ákvörðun? Eins og er í þingsályktunartillögunni á að kíkja í pakkann og síðan á þjóðin að fá að greiða atkvæði um samninginn. En það kemur á daginn að hæstv. forsætisráðherra og hæstv. umhverfisráðherra hafa bara allt annan skilning á þessu máli og ætla jafnvel að bæta við þriðja þrepinu, að leggja ekki samninginn fyrir þjóðinni.
Virðulegur forseti. Hvað er þjóðin að fara að kjósa um? Er hún að fara að kjósa um að mögulega geti hæstv. forsætisráðherra bara sleppt því að leggja fyrir samninginn? Fólkið sem segist treysta þjóðinni treystir henni ekki betur en svo að það getur ekki gefið henni einu sinni almennilegar upplýsingar um hvað þjóðin er að fara að kjósa. Síðan vekur það ákveðna ónotatilfinningu þegar hv. formaður utanríkismálanefndar kemur í viðtal með þeim sem hér stendur og segir að aðildarviðræður muni taka þrjú til fjögur ár. Nokkrum dögum síðar kemur hæstv. utanríkisráðherra og segist geta klárað þetta mál á allt að 12 mánuðum. Hvaða samskipti, virðulegur forseti, hafa átt sér stað milli hæstv. utanríkisráðherra og Evrópusambandsins sem gefa það til kynna að hæstv. utanríkisráðherra telji sig geta landað samningi á 12 mánuðum á meðan hv. formaður utanríkismálanefndar telur að það muni taka þrjú til fjögur ár? Hvað liggur þarna á bak við, virðulegur forseti? Eru einhver samskipti í þessum gögnum sem enginn fær að sjá nema nefndarmenn í utanríkismálanefnd? Er eitthvað í þessum gögnum sem einmitt varpar ljósi á þau samskipti sem eru búin að eiga sér stað við Evrópusambandið og jafnvel einhvers staðar bakherbergjasamkomulag?
Við skulum alveg átta okkur á því, virðulegur forseti, að það er til mikils að vinna að fá Ísland inn í Evrópusambandið. Í dag eru 27 ríki í Evrópusambandinu. 17 ríki af 27 fá meira úr sjóðum Evrópusambandsins heldur en þau borga. Tíu ríki eru að borga meira inn í sambandið heldur en þau fá út úr sjóðum sambandsins. Það er eftir miklu að slægjast, virðulegur forseti, að fá Ísland inn í Evrópusambandið. Við yrðum, sem ein ríkasta þjóð Evrópu, ein ríkasta þjóð heims, nettógreiðandi upp á tugi milljarða á ári. Við yrðum nettógreiðendur inn í Evrópusambandið. Þegar Evrópusambandið horfir upp á að fá Úkraínu, Moldóvu og önnur eins ríki sem þurfa á mikilli innviðauppbyggingu að halda þá er frábært að fá einn nettógreiðanda inn í Evrópusambandið og ég tala nú ekki um ef sá nettógreiðandi liggur að einu heitasta svæði í heimi í dag, sem er norðurheimskautið.
Þetta er kjarni málsins. Við sem fullvalda, sjálfstæð þjóð höfum í áratugi, og þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í fararbroddi, verið að byggja upp fríverslunarsamninga, samninga um alls kyns samvinnu á sviði menningarmála, varnar- og öryggismála, viðskipta og annars. Við höfum gert það sem fullvalda þjóð. Við mætum til leiks, við ráðum ferðinni. Það er ekki einhver utanríkisráðherra Evrópusambandsins sem semur fyrir hönd Íslands. Nei, það er íslenskur utanríkisráðherra. Það erum við Íslendingar sem gerum okkar samninga.
Virðulegur forseti. Ég ætla að standa með lýðveldinu, ættjörðinni, 29. ágúst. Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að Íslendingar ráði áfram sínum örlögum og sitji sem fullvalda ríki, sjálfstæð þjóð, í samstarfi og samvinnu við aðrar þjóðir í framtíðinni.