þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Við erum komin undir lok þessarar umræðu um hvort fara eigi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við í Framsókn höfum verið skýr með það að við teljum að það sé eðlilegt að þjóðin hafi lokaorðið en um leið gagnrýnum við harðlega meiri hlutann, og ríkisstjórnina sérstaklega, fyrir mjög óvandaðan undirbúning að málinu og fyrir að það liggi ekki fyrir með skýrum hætti hvaða gögn almenningur í landinu hafi í raun og veru að styðjast við til þess að taka þessa stóru og afdrifaríku ákvörðun. Það er auðvitað þeim mun alvarlegra að tímaþröngin sem meiri hlutinn var settur í af framkvæmdarvaldinu, vil ég meina, gerði þetta að verkum. Eins og ég hef farið yfir áður og fór yfir í nefndaráliti Framsóknar sem ég skrifa undir, í upphafi þessarar umræðu, hefði algerlega verið hægt að vinna þetta betur með meiri undirbúningi. Annars vegar af hálfu framkvæmdarvaldsins, til að mynda ef það lægi fyrir eitthvert hagsmunamat, til að mynda ef það lægi fyrir eitthvert kostnaðarmat á því hvað það mun þýða fyrir Ísland ef það gengur í Evrópusambandið og hvað það mun greiða inn í Evrópusambandið. Það er væntanlega einn af þeim þáttum sem gerir það að verkum að Evrópusambandið telur æskilegt að Ísland gangi í Evrópusambandið því að flestöll ríki sem hafa gengið í Evrópusambandið á liðnum árum hafa sannarlega verið að sækja í sjóði Evrópusambandsins til að fá stuðning við alls kyns innviðauppbyggingu sem mun ekki standa Íslendingum til boða.
Svo hefur líka verið spurt: Af hverju erum við að fara í þessa vegferð? Ég benti á í nefndarálitinu að ef við förum yfir söguna, ef við förum yfir baráttu Íslands við að ná sjálfstæði og fullveldi yfir öllum auðlindum sínum og í öllum málum, allt frá því að við hófum sjálfstæðisbaráttuna á 19. öld með miklum krafti, náðum heimastjórn í upphafi 20. aldar, fullveldi 1918 og sjálfstæðu lýðveldi fyrir tæpum 82 árum, náum því 17. júní nk., þá sjáum við þann árangur sem þessi saga er samtvinnuð, að fara frá einu af fátækustu ríkjum Evrópu í eitt ríkasta land í heimi. Í lok árs 2024 vorum við efst á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna og reyndar ef við færum yfir fleiri lista þá værum við alls staðar að keppa um gull, silfur eða brons. Af hverju höfum við náð þessum árangri? Jú, það er af því að við erum hlutfallslega stórt land með fáa íbúa en með mjög ríkulegar auðlindir: kalt vatn, heitt vatn, raforkuna, náttúruna, sjávarauðlindina, jarðnæði, hreint loft. Auðvitað er þetta ekki tæmandi upptalning. Það má nefna vindinn og þá er ég ekki bara að hugsa um vindorku heldur einnig að fá ferskan vind og margir sem búa við hitabylgjur Evrópu myndu gjarnan vilja fá þokkalegan íslenskan ferskan vind og telja það auðlind sem væri jákvæð. Allt eru þetta auðlindir sem okkur hefur auðnast að nýta á sjálfbæran hátt og halda fullum yfirráðum yfir.
En um hvað snýst málið þá í raun? Jú, auðvitað snýst það um þann vilja og ásetning Viðreisnar, fyrst og fremst, Samfylkingarinnar að einhverju leyti líka, að vilja ganga í Evrópusambandið. Þau halda því fram að við séum að fara í einhverjar samningaviðræður. Samningaviðræður um hvað og við hverja? Við erum að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið sem er samband 27 ríkja með 400 milljónir manna. Við erum eitt ríki, tæplega 400.000 manns, 1%. Við erum náttúrlega að sækja um aðild. Með því að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni erum við að fara í þá vegferð. Meiri hlutinn heldur því hér fram að gamla umsóknin frá 2009 sé í gildi. Það bréf sem fór frá þáverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra var umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Og já, samningarnir snúast fyrst og fremst um aðlögun Íslands að Evrópusambandinu. Þú gengur ekki inn í eitthvert félag — hugsum okkur bara eitthvert félag á Íslandi þar sem þú gengur til félagsins, þá sækir þú um aðild að því félagi. En þú sækir ekki um aðild ef þú getur breytt öllum stofnsamþykktum þess félags. Það dettur ekki nokkrum manni í hug nema meiri hlutanum hér á Alþingi. Þannig að já, við erum að fara í aðlögunarviðræður. Hér hefur verið tekist á um alls konar hluti, orðalag spurningarinnar, tímasetningu og bæði þessi atriði eru algerlega nóg umræðuefni í langan tíma. En málið snýst um það að Viðreisn og Samfylkingin vilja ganga í Evrópusambandið þannig að við erum að sækja um aðild að Evrópusambandinu með því að segja já og fara í þessa vegferð.
Eftir hverju er Evrópusambandið að slægjast? Er það að slægjast eftir markaðnum, þessum tæplega 400.000 manns á 400 milljóna markaði?
Nei, það er það augljóslega ekki. Er verið að sækjast eftir vörunum sem við framleiðum, fiskinum? Nei, það er augljóslega ekki verið að því. Við erum jú með samning, EES-samninginn, sem gerir það að verkum að þeir geta keypt af okkur og við viljum selja þeim í raun og veru miklu meira og jafnvel með betri hætti, en það er alltaf hægt að semja um það. En það er ekki þess vegna sem þeir eru að sækjast eftir þessu. Evrópusambandið er augljóslega að sækjast eftir því að fá einhvers konar yfirráð yfir auðlindum Íslands, aðgang að Norður-Atlantshafinu, að þessu svæði þar sem Færeyjar, Grænland og Bretland eru ekki aðilar að Evrópusambandinu. Þeir eru ekki aðilar að Evrópusambandinu, helstu nágrannar okkar á þessu svæði. Og svo, eins og ég nefndi áðan, að fá inn ríkt land með alla kosti lýðveldisins Íslands.
Hverju eru þá aðildarsinnar að sækjast eftir? Að eigin sögn eftir lægri vöxtum, nýjum gjaldmiðli, jafnvægi á húsnæðismarkaði. Allt þetta eru mál sem við þurfum að laga sjálf áður en til þess komi að taka upp evru. Það er ekkert til sem heitir evruverðbólga eða evruvextir. Sem dæmi er samkvæmt Eurostat og samræmdri vísitölu þeirra í apríl 2026 Ísland með 4,9% samræmda verðbólgu, samkvæmt þeirri vísitölu. Litháen er með sömu tölu. Lúxemborg er með 5,2%, Króatía 5,4%. Allt eru þetta evrulönd. Búlgaría er hins vegar með 6% og Rúmenía 9,5%, bara svo þetta sé nefnt.
Það hefur líka verið talað um matvælaverð. Hlutfallslega er matvælaverð á Íslandi lægra en meðaltalið í Evrópusambandinu, þ.e. hlutfall matvælaverðs í vísitölu heimilisins, milli 13,5 og 14%. Þannig að það er ekki þess vegna sem við erum að sækjast eftir því, eða hvað? Ef við viljum lækka matvælaverð getum við sannarlega lækkað matvælaverð með því að lækka virðisaukaskatt. Spánn og Ítalía eru t.d. með 4%, Þýskaland með 7%, Holland 9%, Frakkland 5% og Írland 0%. Það væri hægt að lækka matvælaverð á Íslandi ef við værum með evruvirðisaukaskatt á matvæli. Við í Framsókn höfum lagt til að lækka hann, ekki síst vegna þessarar dýrtíðar sem við búum við hér á landi. Allt væri þetta hægt. Það væri líka hægt að ganga lengra í að verja auðlindir Íslands og taka á því með skýrum hætti með því að taka upp þingsályktunartillögu sem við í Framsókn lögðum fram í fyrra og aftur í haust, fyrsti flutningsmaður er Halla Hrund Logadóttir, og sem allur þingflokkurinn er á. Nú hefur meiri hlutinn tækifæri til að sýna vilja sinn í verki og klára þá þingsályktunartillögu um að verja landið gegn uppkaupum erlendra aðila á jörðum. Þetta væri hægt ef vilji væri fyrir hendi.
Ég hef farið hérna yfir að undirbúningur framkvæmdarvalds og meiri hluta utanríkismálanefndar var ekki nægilega góður. Málið fór ekki í samráðsgátt. Gögnin hafa samt sýnt okkur að forsætisráðherra hefur átt fjölmarga fundi og utanríkisráðherra held ég allt að 50, allt frá janúar 2025, með forsvarsmönnum Evrópusambandsins, löngu löngu áður en þetta mál kom hingað inn í þing, löngu áður. Það liggur ekkert hagsmunamat fyrir. Tímalínan er þröng. Gögnin hafa borist seint og illa. Meira að segja barst talsvert af gögnum eftir að málið var tekið út úr nefndinni. Ekki fengu allir gestir að koma fyrir nefndina og enginn gestur fékk að koma aftur þó svo að fullt af spurningum hefðu vaknað, til að mynda Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Satt best að segja náði meiri hlutinn að toppa sig þegar hann setti gögn inn í leyniherbergi. Rifjuðum við þá upp Icesave-tímann, leyniherbergi þar sem við í utanríkismálanefnd gátum séð gögnin en enginn annar. En það er jú þjóðin sem á að taka ákvörðun, ekki við í utanríkismálanefnd, þannig að við höfnuðum því í minni hlutanum að fá aðgang að þessum gögnum enda máttum við hvorki tala um þau, vitna til þeirra og hvað þá birta.
Nefndarálit meiri hlutans var langt, svolítið ruglandi og ekki nærri eins ítarlegt og skýrt og gamla nefndarálit meiri hlutans frá 2009. Það vantar skýr skilyrði sem væru þá samningsmarkmið. Það eru engin rauð strik. Formaður utanríkismálanefndar sagði reyndar hér í umræðum í síðustu viku að hann myndi ekki vilja sækja um aðild að Evrópusambandinu skilyrt, vildi það ekki. Meiri hlutinn varð afturreka með upphaflega spurningu og breytti henni í nefndarálitinu en það er lítið annað á því áliti að græða.
Ef við horfum á málið í heild sinni, í ljósi sögunnar, okkar eigin baráttu í 82 ár, reynslu annarra þjóða sem hafa gengið í ESB með sínum tímabundnu undanþágum og frestun á fullri aðlögun, má spyrja: Af hverju er verið að sækja um aðild? Hver sótti það fast í samfélaginu að Ísland myndi sækja um aðild að Evrópusambandinu? Svarið er fyrst og fremst Viðreisn, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Af hverju er verið að sækja um aðild? Eftir hverju er verið að slægjast? Til hvers var barist í 82 ár? Þegar bætt er við stöðugreiningu á þróun atvinnumála, nýsköpunar og efnahagsmála í Evrópusambandinu í samanburði við Ísland verður sú spurning enn áleitnari því að samkeppnisstaða Evrópusambandsins hefur farið verulega aftur úr öðrum samkeppnissvæðum; Bandaríkjunum, Asíu og reyndar langt á eftir Íslandi, af ýmsum ástæðum. Hagvöxtur er staðnaður, atvinnuleysi viðvarandi, sérstaklega hjá ungu fólki, allt að 20, 30, 40% í einstökum löndum en gjarnan vel yfir 10%. Tökum sem dæmi Finnland. Þessar háu atvinnuleysistölur eru eitthvað sem við myndum aldrei sætta okkur við á Íslandi. Finnland gekk í Evrópusambandið 1996 og tók upp evru í kjölfarið. Atvinnuleysið hefur verið um 10% allan tímann, það hefur verið lítill hagvöxtur og erfitt efnahagsástand. Það hefur hvorki bjargað Finnlandi að ganga í Evrópusambandið né að taka upp evru, síður en svo, og í samanburði við önnur Norðurlönd hafa þeir haltrað þar á eftir enda eina landið með evru.
Allir álitsgjafar og ráðgjafar Evrópusambandsins leggja til að samhæfa Evrópusambandslöndin enn meir með það að markmiði að enda sem bandalagsríki Evrópu. Þá hlýtur maður að spyrja: Er það markmið ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að verða 28. ríki bandalags Evrópu? Til hvers var barist allt frá sjálfstæðisbaráttu 19. aldar með Jón Sigurðsson í broddi fylkingar? Til hvers var barist í þorskastríðunum á 8. áratug síðustu aldar? Til hvers höfum við barist í að verja eignarhald þjóðarinnar á Landsvirkjun og full yfirráð yfir orkuauðlindum landsins? Til hvers höfum við á liðnum árum styrkt mjög lagaumgjörð um jarðakaup erlendra aðila á Íslandi, þó svo að við í Framsókn vildum ganga enn lengra, samanber þingsályktunartillöguna sem ég minntist á áðan?
Þessi vegferð, illa undirbúna vegferð sem splittar þjóðinni upp í tvær fylkingar, vafasama vegferð, er í boði ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans hér á þingi. Þjóðin mun kjósa og væntanlega 29. ágúst nk. Já þýðir að fólk treystir ríkisstjórninni til að fara til ESB án skýrra samningsmarkmiða, án skilyrða, án þess að það séu rauð strik, og biðja um aðild að Evrópusambandinu með einhverjum hókus-pókus undanþágum sem ekkert ríki hefur fengið og svo e.t.v. að fá aðra þjóðaratkvæðagreiðslu, svo fremi að forsætisráðherra telji samninginn nægilega góðan. Forsætisráðherra ætlar nefnilega að bæta hér við einni vegferð enn inn í þetta flókna ferli. En ef þú sem á mál mitt hlustar segir nei, ef þjóðin segir nei er þjóðin sammála því að til einhvers hafi verið barist fyrir fullveldi, sjálfstæði og fullum yfirráðum yfir ríkulegum auðlindum landsins. Ég veit hvað ég mun segja. Ég mun segja nei.