157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:31]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við sem ekki sitjum í hv. utanríkismálanefnd verðum svolítið að reiða okkur á nefndarmenn sem þar sitja, höfum að einhverju leyti okkar vit frá þeim í þessari umræðu. Það liggja auðvitað fyrir margar umsagnir, yfir 100 umsagnir, sem menn hafa haft tök á að rýna kannski misvel. En eitt langar mig að spyrja hv. þingmann sem situr í þessari nefnd um og það er hvort fram hafi farið einhver umræða í þessari þinglegu meðferð sem hann hefur tekið þátt í í nefndinni um þróun Evrópusambandsins, hvort rætt hafi verið sérstaklega um þær breytingar sem verið er að ræða á vettvangi Evrópusambandsins í dag á sambandinu sjálfu, eðli þess svo og einkum og sér í lagi fyrirhugaðri stækkun þess. Þá er ég ekki að vísa til Íslands í því sambandi. Það liggur fyrir að það eru, held ég, hátt í tíu lönd sem eru opinber umsóknarríki og eru mjög mikið að pressa á það að komast inn í sambandið. Núna í vikunni voru fluttar af því fréttir að það standi til að veita Úkraínu einhvers konar hliðaraðild að sambandinu núna á meðan stríðið þar geisar, án atkvæðisréttar en mögulega með fullum réttindum. Var þessi þróun rædd í utanríkismálanefnd? Jafnframt berast nú fréttir af því, sem hefur verið til umræðu nokkuð lengi í Evrópusambandinu en núna með meiri þunga heldur en áður, að það er tillaga m.a. kanslara Þýskalands að ný aðildarríki fái ekki neitunarvald, verði í raun lægra sett heldur en önnur aðildarríki fyrst um sinn. Var þessi þróun eitthvað rædd í utanríkismálanefnd?